Bifröst University
"In crisis management, be quick with the facts, slow with the blame" : krísusamskipti Samherja
Abstract
dc:description.abstractTil umfjöllunar í þessari ritgerð er sú krísa sem myndaðist hjá Samherja Hf fyrir tilstilli uppljóstrunar í gegnum „Samherjaskjölin“ þar sem fréttaskýringaþátturinn Kveikur ásamt Wikileaks, Al Jazeera Investigations og Stundinni settu fram í þremur þáttum. Uppljóstrun var þess eðlis að ásakanir voru í garð Samherja Hf er kom að spillingu um meintar mútugreiðslur til namibískra stjórnmálamanna og valdamanna í skiptum fyrir kvóta ásamt ásökunum er kom að skattlagabrotum. Krísusamskipti Samherja Hf eru skoðuð og skilgreind til samanburðar við þær kenningar er koma að krísu og krísusamskiptum. Markmið rannsóknar er að tilgreina þá krísu sem er að eiga sér stað hjá Samherja Hf sem skipulagsheild, ásamt því að skoða krísusamskipti Samherja Hf og skilgreina til samanburðar við þær kenningar sem eru innan krísufræði. Að hve mikli leyti hefur Samherji Hf fylgt þeim krísuviðbrögðum sem út frá fræðilegu sjónarhorni eru æskilegust með árangur að leiðarljósi. Gerð var tilviksrannsókn á viðbrögðum og krísusamskiptum Samherja Hf í kjölfar uppljóstrun „Samherjaskjalanna“ hjá fréttaskýringaþætti Kveiks sem átti sér stað siðla árs 2019, ásamt eigindlegri viðtalsrannsókn við fimm sérfræðinga á sviði fjölmiðla og samskipta (almannatengsla). Helstu niðurstöður rannsókna má túlka á þann veg að gæta þarf markvissri stefnu strax frá upphafi krísu og æskilegast sé að halda við þá stefnu sem er mörkuð í upphaf krísu, því það er talið óráðlagt og ófagmanlegt að segja eitt og gera annað. Að bregða sér stöðugt í hlutverk fórnarlambs samhliða því að kenna öðrum um er ekki vænleg leið til árangurs. Lykilorð: Krísa, krísusamskipti, Samherji Hf, Image Repair Theory, Situational Crisis Communication Theory.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Erla Björg Eyjólfsdóttir 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39644
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39644