Bifröst University
Framtíðarsýn brunamála við Eyjafjörð : er sameining slökkviliða við Eyjafjörð raunhæfur kostur?
Abstract
dc:description.abstractSameining sveitarfélaga hefur mikið verið í umræðunni enda er það skýr stefna yfirvalda að sameina sveitarfélög. Helstu rökin fyrir sameiningu eru hagkvæmni og skilvirkni. Sameining sveitarfélaga er flókið ferli og tekur langan tíma í undirbúningi. Því hafa sveitarfélög í gegnum tíðina unnið saman af ákveðnum málaflokkum til að hagræða, ná fram hagkvæmni í rekstri og á endanum, sem alltaf hlýtur að vera endamarkmiðið að veita þegnum sínum betri þjónustu. Slökkvilið landsins eru engin undantekning hvað málefnið varðar. Þungt getur reynst fyrir smærri sveitarfélög að reka svo dýra þjónustu og uppfylla hið lögbundna hlutverk sem snýr að rekstri slökkviliða en undir hann fellur starfsmannahald, útvegun tækja og búnaðar, þjálfun og eldvarnareftirlit, svo eitthvað sé nefnt. Samvinna sveitarfélaga um rekstur slökkviliða hefur því verið talsvert algeng. Byggðasamlag er einn möguleikinn um rekstur slökkviliða og er talsverð reynsla af því fyrirkomulagi, samanber Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins, Brunavarnir Árnessýslu Brunavarnir Suðurnesja, Brunavarnir Austurlands og Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu. Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að skoða vilja sveitarstjórnarfólks og slökkviliðsmanna til sameiningar slökkviliðanna á Eyjafjarðarsvæðinu. Til að meta þörf á sameiningu, kostum hennar og göllum, rýnir höfundur einnig í stöðu slökkviliðanna á svæðinu í dag og hvort þau eru að uppfylla lögbundið hlutverk sitt. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að byggðarsamlag sé hentugur kostur eins og sögulegt samhengi sýnir og er í anda stefnu stjórnvalda. Að mati höfundar er mikil þörf fyrir áframhaldandi rannsóknir á sviði brunamála og þá sér í lagi á landsbyggðinni, mótun stefnu og að raunverulegur kraftur verði settur í að efla útkallseiningar slökkviliða smærri sveitarfélaga á landsbyggðinni með sameiningu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gunnar Rúnar Ólafsson 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39584
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39584