Back to results

Bifröst University

„Þetta snýst allt um að útrýma sóun“: hvernig beitir viðskiptainnsýn og bestun hjá Isavia verkfærum straumlínustjórnunar við innleiðingu sjálfvirknivæðingar og eru tækifæri til umbóta?

Abstract

dc:description.abstract

Á undanförnum árum og áratugum hafa æ fleiri fyrirtæki beitt hugmyndafræði straumlínustjórnunar. Forsenda þess að innleiðing straumlínustjórnunar skili árangri er að allt þjónustu- eða framleiðsluferlið sé skoðað ítarlega og reynt að útrýma sóun alls staðar. Markmið rannsóknarinnar er að kanna þekkingu og beitingu starfsfólks Viðskiptainnsýnar og bestunar hjá Isavia á verkfærum straumlínustjórnunar út frá þremur stórum verkefnum sem fyrirtækið réðst í: Innleiðingu á sjálfvirkum landamærum, sjálfvirkri töskuafhendingu og svokölluðu Entry/Exit-kerfi. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningu: „Hvernig beitir Viðskiptainnsýn og bestun hjá Isavia verkfærum straumlínustjórnunar við innleiðingu sjálfvirknivæðingar og eru tækifæri til umbóta?“ Tekin voru viðtöl við alla starfandi starfsmenn deildarinnar og könnuð þekking þeirra á verkfærum straumlínustjórnunar, hvort og hvernig þeim væri beitt við þau verkefni sem hér eru til skoðunar. Ætlast er til að starfsfólk deildarinnar hafi heildaryfirsýn yfir alla þjónustu sem flugstöðin veitir og hvernig farþegar upplifa hana. Deildin starfar oft með öðrum deildum Isavia og hún kemur beint eða óbeint að allri umbótavinnu í flugstöðinni. Rannsóknin leiddi í ljós að við sjálfvirknivæðingu á Keflavíkurflugvelli hefur verkfærum straumlínustjórnunar verið beitt upp að vissu marki. Víða er þó pottur brotinn og sú deild Isavia sem sjónum hefur verið beint að við þessa rannsókn gæti beitt straumlínustjórnun með mun markvissari hætti en raunin hefur verið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Einar Gunnarsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39583
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39583

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Einar Gunnarsson 1986-. „Þetta snýst allt um að útrýma sóun“: hvernig beitir viðskiptainnsýn og bestun hjá Isavia verkfærum straumlínustjórnunar við innleiðingu sjálfvirknivæðingar og eru tækifæri til umbóta?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39583