Back to results

Bifröst University

Persónuvernd, Innleiðing GDPR-reglugerðar í lög og vitundarvakning um persónuvernd

Abstract

dc:description.abstract

Útdráttur Markmið og tilgangur þessarar ritgerðar er að gera athugun á persónuvernd á tímum upplýsingaaldar sem einkennt hefur verið við 21. öldina. Með aukinni netnotkun og hraða í lausnamiðaðri tækni hefur aldrei verið mikilvægara að framfylgja skyldum um persónuvernd og gæta öryggis með fullnægjandi hætti því á sviði. Hin almenna persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins og ráðsins var innleidd í lög á Íslandi í gegnum EES-samning 15. júlí 2018. Reglugerðin er gjarnan kölluð GDPR-reglugerðin og markar tímamót í sögu persónuverndar. GDPR-reglugerðin hefur það markmið að boða strangari og samræmdari stefnu innan aðildarríkja EES á sviði persónuverndar, með auknu gagnsæi og auknum heimildum persónuyfirvalda á sviði löggæslu og refsivörslu í Evrópu. Að þessu sögðu fer hér fram umfjöllun um innleiðingu GDPR-reglugerðar og athugun á áhrifum innleiðingar á lagaumhverfi persónuverndar sem í gildi er á Íslandi. Hin mikla tækniþróun með notkun Internetsins síðastliðin misseri og áratugi hefur skapað með sér gífurleg tækifæri samhliða auknum vandkvæðum á sviði persónuverndar. Aðalvandinn er að tryggja að notkun og vinnsla persónuupplýsinga fari fram með öruggum og fullnægjandi hætti. Að áliti höfundar er gildissvið GDPR-reglugerðar víðtækt, þess vegna mun skýrast þegar fram líður með frekari dómaframkvæmd Evrópudómstóls og úrlausna eftirlitsyfirvalda aðildarríkjanna, hvort að endurbætur laganna hafi leitt til þess að núgildandi löggjöf um persónuvernd tryggi einstaklingum fullnægjandi vernd grundvallarréttinda á sviði persónuverndar og friðhelgi einkalífs.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Margrét Magnúsdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39575
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39575

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Margrét Magnúsdóttir 1976-. Persónuvernd, Innleiðing GDPR-reglugerðar í lög og vitundarvakning um persónuvernd. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39575