Back to results

Bifröst University

Skylda sveitarfélaga gagnvart fjölskyldum með langveik börn

Abstract

dc:description.abstract

Flutningur málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga fór fram 1. janúar 2011 en komist var að samkomulagi um útfærslu á þjónustu við fatlað fólk í nóvember 2010. Var markmiðið með flutningnum að færa ábyrgð á fjármögnun þjónustunnar frá ríki til sveitarfélaga og með því tryggja sveitarfélögum réttmætan fjárhagsramma. Er viðfangsefni þessarar ritgerðar er ætlað varpa nánari ljósi á þessa útfærslu í nánari ljósi með réttindum fatlaðra í huga samkvæmt innlendri löggjöf ásamt alþjóðlegum skuldbindingum sem Ísland hefur gengst að og verða skyldur sveitarfélaga skoðaðar í þessu samhengi. Í öðrum kafla ritgerðarinnar er fjallað um þróun löggjafans í málaflokknum og í fjórða kafla verður fjallað um réttaröryggi fatlaðra. Í fimmta kafla er skoðaður réttur fatlaðra til heilbrigðisþjónustu. Kafli sex inniheldur umfjöllfun um réttin til framfærslu og félagsþjónustu. Fjallað er um réttinn til menntunar í sjöund kafla en í áttunda kafla er fjallað um stjórnskipulag málefna fatlaðra og langveikra. Að lokum er svo fjallað um lög um stuðning við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Reiddi rannsóknin í ljós að réttindi fatlaðra hafa tekið miklum breytingum til hins betra síðustu ár vegna þeirra alþjóðaskuldbindinga sem Ísland hefur tekið upp og leitt í lög hér á landi. Hefur einnig vinna átt sér stað í breytingum á innlendri löggjöf sem hefur veitt þessum réttindum hátt undir höfði. Þrátt fyrir það hefur dómaframkvæmd sýnt að eftir flutning málaflokksins hafa dómstólar ekki viljað fara of langt gegn sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga og því nauðsynlegt, að mati höfunar, að breyta þurfi viðhorfi innan íslensks réttarkerfis og stjórnsýslu, svo þeim markmiðum sem stefnt er að verði náð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vignir Már Sigurjónsson 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39503
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39503

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vignir Már Sigurjónsson 1981-. Skylda sveitarfélaga gagnvart fjölskyldum með langveik börn. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39503