Back to results

Bifröst University

Hvernig er hægt að nýta samhæfð markaðssamskipti og samfélagsmiðla til að auka vörumerkjavirði netverslana : könnun á íslenskum fyrirtækjum með netverslun

Abstract

dc:description.abstract

Hvernig er hægt að nýta samhæfð markaðssamskipti og samfélagsmiðla til að auka vörumerkjavirði netverslana? Rannsókn þessi er gerð til að kanna hvernig netverslanir geti nýtt sér samhæfð markaðssamskipti til að haga sínu markaðsstarfi og hvernig samfélagsmiðlar passa inn í þá hugmyndafræði. Gagnaöflun fór fram með því að senda út megindlega spurningakönnun á 530 fyrirtæki og viðtöl voru tekin við fjóra sérfræðinga sem starfa í markaðsmálum. Helstu niðurstöður rannsóknar sýndu fram á að samhæfð markaðssamskipti væru heppilegt tól til að nota í markaðsstarfi fyrirtækja. Fyrirtæki þurfa að vera með ákveðna stefnu, fara eftir henni og hafa hana áþreifanlega í allri starfsemi fyrirtækisins er snýr að markaðsmálum, hvort sem það eru samfélagsmiðlar, verslunin sjálf eða hefðbundnir miðlar. Mikilvægt er að stefnumótun á samfélagsmiðlum haldist í hendur við almenna markaðsstefnu fyrirtækisins. Þá geta fyrirtæki nýtt samfélagsmiðla til að framleiða virðisaukandi markaðsefni, þar sem að markmiðið með notkun samfélagsmiðla ætti ekki eingöngu að vera sölulegs eðlis. Virðisaukandi efni á samfélagsmiðlum á að taka tillit til markaðsstefnu fyrirtækisins, fræða neytandann um vöruna eða þjónustuna og opna á samskipti við viðskiptavini. Það hjálpar til við að byggja upp langtímaviðskiptasambönd og gerir neytendur að fylgjendum á sama tíma og netverslunin eykur vörumerkjavirði. Þessi tiltekna rannsókn fór fram á tímum heimsfaraldurs og því hefur hlutdeild netverslunar aukist talsvert á síðastliðnum mánuðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þorgerður Sól Ívarsdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37679
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37679

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þorgerður Sól Ívarsdóttir 1999-. Hvernig er hægt að nýta samhæfð markaðssamskipti og samfélagsmiðla til að auka vörumerkjavirði netverslana : könnun á íslenskum fyrirtækjum með netverslun. 2021. http://hdl.handle.net/1946/37679