Abstract
dc:description.abstractUmfjöllunarefni þessarar ritgerðar er endurmörkun (e. rebranding) vörumerkja. Endurmörkun felst í því að vörumerki breytir útliti, ímynd, nafni eða einhverri samsetningu af þessum þáttum. Ástæður endurmörkunar eru eins ólíkar og vörumerkin sjálf en í ritgerðinni verður grafið dýpra í helstu ástæður fyrir endurmörkun. Ritgerðinni er skipt í tvo hluta, í fyrri hluta ritgerðarinnar verður farið yfir helstu hugtök í vörumerkjastjórnun og endurmörkun. Í seinni hluta ritgerðarinnar verður fjallað um þrjú vörumerki, en þau hafa öll endurmarkað á einhverjum tímapunkti. Þessi vörumerki eru Ísey skyr, Hámark og Síríus Pralín, en ákveðið var að velja vörumerki sem hafa breytt mismunandi þáttum í endurmörkunarferlinu. Ísey skyr breytti ímynd, útliti og nafni, Síríus Pralín breytti einnig ímynd, útliti og nafni og Hámark breytti ímynd og útliti. Markmið rannsóknarinnar er að skoða viðhorf neytenda til endurmörkunar á þessum þrem vörumerkjum. Gagnaöflun fór fram með þeim hætti að skoðaðar voru bækur, rafrænt efni og framkvæmd rannsókn. Ákveðið var að framkvæma bæði megindlega og eigindlega rannsókn þar sem viðtöl voru tekin við starfsmenn þessara vörumerkja en einnig var send út rafræn könnun til að skoða viðhorf neytenda á endurmörkun þessara vörumerkja. Í spurningakönnuninni voru þátttakendur beðnir um að velja milli myndmerkja, umbúða og auglýsinga fyrir og eftir endurmörkun vörumerkjanna. Niðurstöður eru mismunandi milli vörumerkja en þátttakendur völdu Ísey skyr framyfir Skyr.is í öllum þáttunum. Þátttakendum fannst myndmerki og umbúðir Hámarks fyrir endurmörkun höfða frekar til sín heldur en myndmerki og umbúðir eftir endurmörkun, munurinn var mikill, auglýsing Hámarks eftir endurmörkun höfðaði hins vegar frekar til þátttakenda. Þátttakendum fannst myndmerki og umbúðir Pipp höfða frekar til sín heldur en Síríus Pralín en munurinn var ekki mikill, auglýsing Síríus Pralíns höfðaði frekar til þátttakenda heldur en auglýsing Pipp. Helstu niðurstöður benda því til þess að viðhorf neytenda til endurmörkunar sé mismunandi eftir vörumerkjum en miðað við viðhorf neytenda til þessara þriggja vörumerkja sem tekin eru fyrir í þessu verkefni voru niðurstöður hvers vörumerkis mjög ólíkar hinum vörumerkjunum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jana Rut Magnúsdóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/37675
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/37675