Back to results

Bifröst University

Komix

Abstract

dc:description.abstract

Þessi skýrsla er viðskiptaáætlun fyrir Komix, þekkingarfyrirtæki fyrir veitinga,- hótel- og matvælageirann sem veitir margvíslega ráðgjöf. Ráðgjöfin sem fyrirtækið býður upp á er fyrst og fremst byggð upp á áratuga reynslu fagmanna og sérfræðinga innan geirans. Ráðgjöf sem þessi er alls ekki ný af nálinni því erlendis eru margar stórar keðjur víðs vegar um heiminn sem sérhæfa sig í sams konar ráðgjafaþjónustu eða „restaurant consulting.” Notast var við hugmyndafræði Ostwalder (2004) við gerð þessa viðskiptalíkans til að sjá hvort Komix hefði það tækifæri í höndum sér sem það telur sig hafa. Á ári hverju eru opnaðir nýir veitingastaðir og ný hótel rísa hratt upp í takt við fjölgun erlendra ferðamanna til landsins. Margir fara út í að opna nýja veitingaþjónustu án þess að gera sér fullkomlega grein fyrir öllum þeim þáttum sem taka þarf tillit til. Rekstur fyrirtækja í veitinga,- hótel- og matvælageiranum er harður og í mörg horn að líta. Fyrir jafnt nýja sem gamla í þessu umhverfi eru fjölmörg atriði sem betur mega fara í rekstrinum og fara jafnvel fram hjá rekstraraðilum vegna anna eða hreinnar vankunnáttu. Þá er mikil hætta á að vandamálin byrji að hlaðast upp eitt af öðru, og áður en fólk veit af, stendur það frammi fyrir að stofnféð er búið, tap er á rekstrinum og/eða framlegð undir væntingum. Þegar farið er í rekstur af þessum toga verður að hafa margt í huga til að reksturinn gangi vel. Má þar nefna nokkra lykilþætti eins og þjálfun starfsfólks, að skýrir verkferlar séu til staðar og að stjórnendur hafi yfirgripsmikla sýn á allt er viðkemur rekstrinum, s.s. birgðahald, hreinlætismál og ekki síst stafræna markaðssetningu. Niðurstaða skýrslunnar sýnir að hér er um að ræða gott viðskiptatækifæri sem vert er að halda vel utan um og skipuleggja vel stefnu þess bæði viðskiptalega sem og markaðfræðilega séð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sólrún Björg Ólafsdóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37159
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37159

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sólrún Björg Ólafsdóttir 1978-. Komix. 2020. http://hdl.handle.net/1946/37159