Bifröst University
Heimildir og frábrigði í veitutilskipun og veitureglugerð : með áherslu á val bjóðenda og mat tilboða í innkaupum veitufyrirtækja
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari er farið yfir bakgrunn og rýndar helstu lagareglur sem gilda um innkaup veitufyrirtækja, sérstaklega varðandi val bjóðenda og mat tilboða og að hvaða leyti reglurnar eru frábrugðnar þeim sem almennt gilda um opinber innkaup. Lagaumgjörð opinberra innkaupa breyttist mikið við aðild Íslands að EES-samningnum, en í kjölfar þess þurfti að aðlaga hana að tilskipunum ESB á þessu sviði. Núgildandi tilskipanir sem innleiddar voru með lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup og veitureglugerðinni nr. 340/2017 eru útboðstilskipun 2014/24/ESB og veitutilskipunin 2014/25/ESB. Þessar tvær tilskipanir eru hliðstæðar og um flest líkar, en þó eru reglur veitutilskipunarinnar heldur sveigjanlegri. Ástæðuna má rekja til þess að í ríkjum ESB eru veitufyrirtæki ýmist í opinberri eigu eða einkaeigu og ekki hefur þótt eðlilegt að láta eins strangar reglur gilda um einkafyrirtæki eins og hið opinbera. Eftir að orkutilskipanir ESB voru innleiddar hafa sum íslensk veitufyrirtæki einnig verið einkavædd að einhverju eða öllu leyti og ný fyrirtæki í einkaeigu verið stofnuð sem sinna framleiðslu og sölu rafmagns. Val bjóðenda og mat tilboða í innkaupum veitufyrirtækja er háð fyrirmælum löggjafarinnar sem byggir á veitutilskipuninni, sem eru að mestu hliðstæð reglum um val bjóðenda og mat tilboða almennt í opinberum innkaupum. Þó hafa veitufyrirtækin meira frelsi um val á innkaupaferlum og útboðsskylda þeirra er einnig mun takmarkaðri. Val bjóðenda og mat tilboða þurfa þó ávallt að grundvallast á markmiðum löggjafarinnar um hagkvæmni og virka samkeppni og meginreglum um jafnræði, gagnsæi, meðalhóf og bann við mismunun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arnhildur Ásdís Kolbeins 1962-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/36469
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/36469