Back to results

Bifröst University

Hvar eru LÍNþegar? Staða námslánasjóðskerfisins íslenska vorið 2020

Abstract

dc:description.abstract

Í verki þessu er leitast eftir að svara því hver staða Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) er vorið 2020 og reynt að fjalla um hana í samhengi við tölur um íslenska námsmenn. Þannig hafa sögulegar tölur um fjölda lánþega og fjölda námsmanna verið skoðaðar í samhengi við heildarveitingu námslána eftir árum. Til að ná áreiðanlegum samanburði hefur heildarveiting námslána verið framreiknuð miðað við meðaltal vísitölu neysluverðs ársins 2018. Sá annmarki er þó á gögnunum að stundum vísa þau til almanaksára og stundum til námsára, en þó gagnast þau til að sýna sögulega þróun. Sömuleiðis er stöðu námsmanna vorið 2020 gerð stutt skil, en á þeim tíma þegar unnið er að frágangi þessarar ritgerðar búa íslenskir námsmenn við mikla óvissu um eigin efnahagslegu framtíð sökum heimsfaraldurs COVID-19 og atvinnuleysis í samfélaginu í kjölfar faraldursins. Þróunin hefur verið á þá leið að færri og færri taka lán frá LÍN og hefur sú þróun verið sérstaklega hröð frá árinu 2013. Bendir að ákveðnu leyti til þess að þar sé um ákveðinn ímyndarvanda stofnunarinnar að ræða gagnvart námsmönnum – bæði kom skýrt fram í könnun sem LÍN lét gera að fáir litu á LÍN sem fyrirmyndarstofnun og sömuleiðis styðja einstakar sögur námsmanna við þær niðurstöður. Þar að auki hefur mennta- og menningarmálaráðuneytið lagt áherslu á að breyta nafni sjóðsins með nýju frumvarpi um námslánasjóðskerfið íslenska – en nafnið Lánasjóður íslenskra námsmanna er rótgróið, frá árinu 1961, og því ólíklegt að tilefni þætti til breytinga ef ekki væri til að breyta ímynd sjóðsins. Hlutfall lánþega af heildarnemendafjölda, þá bæði íslenskra námsmanna erlendis og nemenda í íslenskum háskólum, hefur hrunið á undanförnum árum og var komið niður í 35,97% námsárið 2016-2017, úr 57,59% námsárið 2012-2013, sem var sögulega eðlilegt hlutfall. Nýjustu tölur um fjölda lánþega eru frá námsárinu 2016-2017 en nýjasti ársreikningur LÍN, frá árinu 2018, sýnir að veitt námslán lækkuðu enn á því ári og þar með má leiða líkum að því að fjöldi lánþega hafi enn verið á undanhaldi. Sömuleiðis sýna tölur Hagstofunnar frá námsárinu 2018-2019 um fjölda námsmanna erlendis sem leita aðstoðar LÍN enn fram á fækkun lánþega í þeim hópi. Útreiknuð gögn sýna að stuðningur LÍN við háskólakerfið sem heild hefur ekki verið lægri frá því að Hagstofan fór að gefa út heildartölur um fjölda námsmanna, þá sökum fækkun lánþega. Þó má leiða líkur að því að þróunin muni snúast við námsárið 2020-2021 sökum mikils atvinnuleysis í kjölfar heimsfaraldurs COVID-19. Það er þó enn áhyggjuefni hve slæma ímynd LÍN hefur meðal námsmanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Leifur Finnbogason 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36459
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36459

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Leifur Finnbogason 1989-. Hvar eru LÍNþegar? Staða námslánasjóðskerfisins íslenska vorið 2020. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36459