Back to results

Bifröst University

Obodo snjallsímaforrit : viðskiptaáætlun

Abstract

dc:description.abstract

Ferðaþjónusta hefur verið ört vaxandi atvinnugrein á Íslandi undanfarin ár. Í þessari ritgerð vann höfundur viðskiptaáætlun fyrir Obodo snjallsímaforrit sem er ætlað að tengja ferðamenn og heimamenn saman á íslenskum markaði. Forritið býr einnig yfir korti frá Google maps sem býr yfir helstu ferðamannastöðum og þar geta fyrirtæki boðið upp á afsláttarkóða fyrir ferðamenn, sem eykur virði forritsins fyrir notendur. Gerð var markaðs- og samkeppnisgreining, notast var við fimm krafta líkan Porters til að greina markaðinn. Markaðsáætlun var gerð fyrir fyrsta rekstrarár Obodo sem og ytra umhverfi. Obodo var skoðað með PESTEL greiningu. Ásamt því var gerð fjárhagsáætlun til þriggja ára og farið var yfir rekstraráætlunina, gerð var núllpunkts- og sviðsmyndagreining. SVÓT greining var framkvæmd til þess að greina styrkleika og veikleika innra umhverfis Obodo, ásamt ógnum og tækifærum í ytra umhverfi Obodo. Niðurstöður þessarar viðskiptaáætlunnar leiddu í ljós að verkefnið gæti orðið að veruleika ef skoðað er útfrá fjárhagslegum sjónarmiðum, það er þó bundið því að forritið ná vinsældum og ferðamenn nýti sér það ásamt því að heimamenn skrá upplifanir. Höfundur telur þó að einfalda þurfi hugmyndina. Mikill kostnaður fylgir gerð slíks forrits, erfitt er að koma því á markað og þarf það að ná miklum netáhrifum til þess að fólk sjái hag sinn í því að nota það. Með því að minnka áhættu í upphafi og einblína á aðgreiningu forritsins er það líklegra til árangurs.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sólveig Valgerður Sveinbjörnsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35038
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35038

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sólveig Valgerður Sveinbjörnsdóttir 1994-. Obodo snjallsímaforrit : viðskiptaáætlun. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35038