Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að skoða ímynd orkudrykkja á Instagram. Neysla orkudrykkja hefur sprungið út á síðustu árum og eru drykkirnir sérstaklega vinsælir hjá ungu fólki. Instagram þótti hentugur miðill til að skoða ímynd orkudrykkjanna þar sem markaðssetning þeirra fer að miklu leyti fram í gegnum miðilinn og einnig vegna þess hve vinsæll miðillinn er hjá unglingum og ungu fólki. Í rannsókninni voru Instagram reikningar fjögurra vinsællra orkudrykkjategunda innihaldsgreindir. Áhugavert var að skoða hvaða skilaboð orkudrykkjategundirnar eru að senda í gegnum Instagram og hvaða áhrif þau gætu haft á unglinga. Niðurstöðurnar benda til þess að ímynd orkudrykkja á Instagram sé af nokkurskonar ferskum heilsudrykk sem auki orku. Drykkirnir voru oft tengdir við heilsu og íþróttaiðkun/æfingar og voru oftast auglýstir af íþróttafólki en einnig voru þeir stundum auglýstir af venjulegum áhrifavöldum. Þá var orkudrykkjunum gjarnan lýst sem ferskum og svalandi drykkjum sem ættu að geta svalað þorsta.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jenný Harðardóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/35024
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/35024