Bifröst University
Hvernig má takmarka trúfrelsi og á hvaða hátt má takmarka trúfrelsi á vinnumarkaði án þess að um mismunun sé að ræða?
Abstract
dc:description.abstractTrúfrelsi er eitt af þeim mannréttindum sem er gildandi réttur innan allra ríkja Evrópuréttar og rétturinn til að trúa eða vera trúlaus er algjör en hvernig trú er iðkuð má takmarka. Aukinn fjöldi innflytjenda til Evrópu og aukin fjölmenning gerir að verkum að fleiri árekstrar verða vegna ólíkra trúarbragða, eða trúleysis, menningar og siðferðis einstaklinga. Þá reynir á lög um trúfrelsi og mannréttindi til að fá úr því skorið hvenær og hvernig má takmarka trúfrelsið. Markmið ritgerðarinnar er að skoða á hvaða hátt er heimilt að takmarka trúfrelsi og voru gildandi lög, samningar og sáttmálar sem og dómar greindir til að komast að niðurstöðu. Einnig að skoða með hvaða hætti megi takmarka trúfrelsi á vinnumarkaði án þess að til mismununar komi, í ljósi löggjafar um bann við mismunun á vinnumarkaði. Helstu niðurstöður eru að heimildir til takmörkunar á trúfrelsi þurfa að vera í lögum og í almannaþágu. Innri trú er ekki hægt að takmarka, takmarkanir snúa alltaf að ytri trú, sem snýr að hegðun manna. Takmarkanir eru þó ekki þær sömu í öllum ríkjum þar sem þríeykið; trú, menning og siðferði, hefur mismunandi áhrif á löggjöf þeirra. Takmörkun á trúfrelsi á vinnumarkaði er með öðrum hætti en almenn takmörkun og snýr gjarnan að því að vernda hlutleysi fyrirtækja og viðskiptahagsmuni. Ávalt ber að hafa í huga að það eru menn sem setja lög, lög sem byggja á einhverri sannfæringu og hafa þar með ávalt tengingu við trú, menningu og siðferði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Karitas Bergsdóttir 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/34280
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/34280