Back to results

Bifröst University

Íslenskur fatahönnunarklasi? Samanburður á uppbyggingu nýrrar atvinnugreinar í tveimur borgum

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknin snýr að því hvort forsendur séu til þess að stofna fatahönnunarklasa á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort það gæti eflt fatahönnunargeirann og stuðlað að aukinni verðmætasköpun. Gerð er grein fyrir upplýsingum um geirann hér á landi og á Norðurlöndum. Litið var til klasafræða ásamt því að tískuklasi í Osló var heimsóttur og rannsakaður til samanburðar. Tekin voru eigindleg viðtöl við fjölbreyttan hóp fagaðila í Osló og Reykjavík. Niðurstöður viðtalanna voru síðan bornar saman við áðurnefnd fræði og kenningar um klasa. Finna mátti mikinn samhljóm milli landanna. Þarfir norska geirans voru af sama toga og þess íslenska en þar hefur verið unnið markvisst að uppbyggingu undanfarin ár. Norðmenn hafa litið til Danmerkur sérstaklega þar sem fatahönnun er talin til helstu útflutningsgreina. Í ljósi þessa má álykta að fyrir greinina hér á Íslandi væri réttara að líta til Noregs þar sem sambærileg vinna hefur verið unnin á undanförnum árum og þörf er á hér. Norski tískuklasinn var stofnaður árið 2014 og hefur velta fatahönnunar aukist um 17% síðan. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að fatahönnunargeirinn er of lítill hér á landi til að mynda klasa. Fatahönnun er mun tengdari viðskiptalífinu en margar aðrar hönnunargreinar. Þó skortir íslenska fatahönnuði þekkingu á viðskiptahlið geirans. Með víðari skírskotun yfir í fleiri hönnunargreinar gæti reynst auðveldara að fá öflug fyrirtæki til liðs við klasann og efla þannig viðskiptafærni með það að markmiði að auka verðmætasköpun og stuðla að auknum útflutning á íslenskri hönnun. Lykilorð: Tískuiðnaður, fatahönnun, klasi

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Magnea Einarsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34277
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34277

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Magnea Einarsdóttir 1986-. Íslenskur fatahönnunarklasi? Samanburður á uppbyggingu nýrrar atvinnugreinar í tveimur borgum. 2019. http://hdl.handle.net/1946/34277