Abstract
dc:description.abstractMarkaðssamskipti hafa tekið miklu stökki með stafrænni þróun á síðustu árum og við það opnast nýjar leiðir til þess að eiga samskipti við neytendur. Ritgerðin hefur það markmið að skoða hver sé æskileg notkun á samfélagsmiðlinum Instagram í markaðssamskiptum og þá hvað miðillinn getur gert fyrir vörumerki. Rannsóknarspurningin er: „Hver er ákjósanleg notkun Instagram í markaðssamskiptum?“ Rannsóknin er tvíþætt. Fyrst eru tekin stýrð viðtöl við fjóra viðmælendur sem sinna markaðsmálum hjá íslenskum fyrirtækjum og nýta sér Instagram í markaðssamskiptum. Síðan er send út spurningarkönnun og henni dreift rafrænt á samfélagsmiðlinum Facebook og voru 401 svarendur. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna hversu öflugt markaðstól Instagram er þegar horft er á vörumerkjaímynd og vörumerkjavitund. Vilji markaðsfólk fá sem mestan ávinning með notkun Instagram þurfa þau að greina markhópinn vel og aðsníða markaðsskilaboðin sín á þann hátt að þau tali til þess markhóps sem vörumerkið vill ná til. Instagram hefur stórann og fjölbreyttann notendahóp sem vörumerki geta nýtt sér til að koma markaðsskilaboðum sínum á framfæri og stofna til samskipta við neytendur. Instagram er stafrænn miðill sem safnar gögnum sem nýtist markaðsfólki í markhópagreingu ásamt endurmarkaðssetningu. Instagram er kominn til að vera og eitthvað sem markaðsfólk ætti ekki að láta framhjá sér fara.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elvar Andri Guðmundsson 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/34257
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/34257