Back to results

Bifröst University

Instagram sem markaðstól

Abstract

dc:description.abstract

Markaðssamskipti hafa tekið miklu stökki með stafrænni þróun á síðustu árum og við það opnast nýjar leiðir til þess að eiga samskipti við neytendur. Ritgerðin hefur það markmið að skoða hver sé æskileg notkun á samfélagsmiðlinum Instagram í markaðssamskiptum og þá hvað miðillinn getur gert fyrir vörumerki. Rannsóknarspurningin er: „Hver er ákjósanleg notkun Instagram í markaðssamskiptum?“ Rannsóknin er tvíþætt. Fyrst eru tekin stýrð viðtöl við fjóra viðmælendur sem sinna markaðsmálum hjá íslenskum fyrirtækjum og nýta sér Instagram í markaðssamskiptum. Síðan er send út spurningarkönnun og henni dreift rafrænt á samfélagsmiðlinum Facebook og voru 401 svarendur. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna hversu öflugt markaðstól Instagram er þegar horft er á vörumerkjaímynd og vörumerkjavitund. Vilji markaðsfólk fá sem mestan ávinning með notkun Instagram þurfa þau að greina markhópinn vel og aðsníða markaðsskilaboðin sín á þann hátt að þau tali til þess markhóps sem vörumerkið vill ná til. Instagram hefur stórann og fjölbreyttann notendahóp sem vörumerki geta nýtt sér til að koma markaðsskilaboðum sínum á framfæri og stofna til samskipta við neytendur. Instagram er stafrænn miðill sem safnar gögnum sem nýtist markaðsfólki í markhópagreingu ásamt endurmarkaðssetningu. Instagram er kominn til að vera og eitthvað sem markaðsfólk ætti ekki að láta framhjá sér fara.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elvar Andri Guðmundsson 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34257
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34257

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elvar Andri Guðmundsson 1993-. Instagram sem markaðstól. 2019. http://hdl.handle.net/1946/34257