Back to results

Bifröst University

Hvert er viðhorf starfsmanna á hugbúnaðarsviðum Origo til núverandi vinnurýmis og mögulegra breytinga á því og hvað þarf að hafa í huga ef gera á breytingar?

Abstract

dc:description.abstract

Hvert er viðhorf starfsmanna á hugbúnaðarsviðum Origo til núverandi vinnurýmis og mögulegra breytinga á því og hvað þarf að hafa í huga ef gera á breytingar? Höfundur lagði upp með þessa rannsóknarspurningu við upphaf verkefnisins. Rannsóknin var afmörkuð við tvö svið hugbúnaðarfyrirtækisins Origo, hugbúnaðarlausnir og viðskiptalausnir. Markmiðið var að kanna viðhorf starfsmanna þeirra sviða til núverandi vinnurýmis og viðhorf þeirra til að breyta því rými og taka upp verkefnamiðað vinnurými. Rannsóknin var unnin í samstarfi við Origo hf. Rannsóknin var byggð upp í kringum spurningakönnun sem var lögð fyrir starfsmenn ásamt því að höfundur heimsótti fyrirtæki í Reykjavík til þess að afla sér þekkingar á viðfangsefninu. Breytingar sem þessar kæmu til með að hafa mikil áhrif á starfsmenn fyrirtækisins og því þyrfti að undirbúa þær vel og upplýsa starfsfólk um breytingarnar og hvaða tilgangi þær þjóna. Af þeim niðurstöðum sem höfundur komst að er ljóst að verkefnamiðað vinnurými getur haft góð áhrif á starfsemi fyrirtækja á sama tíma og það getur dregið verulega úr kostnaði fyrirtækja þegar kemur að húsnæðiskostnaði. Í niðurstöðum spurningakönnunarinnar má sjá að starfsmenn eru almennt ánægðir með núverandi vinnurými og frekar neikvæðir gagnvart því að taka upp verkefnamiðað vinnurými.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnar Már Hoffmann 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32480
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32480

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnar Már Hoffmann 1986-. Hvert er viðhorf starfsmanna á hugbúnaðarsviðum Origo til núverandi vinnurýmis og mögulegra breytinga á því og hvað þarf að hafa í huga ef gera á breytingar?. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32480