Back to results

Bifröst University

Gögn knýja allt sem við gerum : hvaða lýðræðislegu áskoranir rísa af gagnamiðaðri markaðssetningu stjórnmálaafla?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi leitast við að svara rannsóknarspurningunni „hvaða lýðræðislegu áskoranir rísa af gagnamiðaðri markaðssetningu stjórnmálaafla?“. Í kjölfar uppljóstrana er varða tilhögun markaðssetningar fyrirtækisins Cambridge Analytica sem starfaði m.a. fyrir Trump herferðina í Bandaríkjunum og Brexit herferðina í Bretlandi hefur vaknað umræða innan samfélagsins um slíka markaðssetningu og hvort hún megi teljast eðlileg. Í ritgerðinni eru kenningar um rökræðu- og leiðtogalýðræði raktar ásamt kenningum um réttlæti. Þá er aðferðafræði stjórnmálamarkaðssetningar skoðuð í sögulegu ljósi og markaðsnálganir kannaðar og síðar bornar að lýðræðiskenningunum tveimur ásamt markaðsmódeli Cambridge Analytica. Niðurstöður ritgerðarinnar eru að fjórar megin áskoranir rísi af gagnamiðaðri markaðssetningu, mismununarvandi er varðar aukið aðgengi efnaðra stjórnmálaafla að slíkum verkfærum, upplýsingavandi er varðar ósamrýmanlegar upplýsingar og freistnivanda í þágu þeirra sem hafa upplýsingalega yfirburði að bera. Þátttökuvandi er varðar misnotkun á bergmálsklefum samfélagsmiðla til þess að letja jaðarhópa og aðra sem reynast illmóttækilegir fyrir skilaboðum stjórnmálaafla frá þátt¬töku í kosningum rís einnig af slíkri markaðssetningu. Ásamt aðgreiningarvanda, sem felst í því hversu erfitt getur reynst að greina á milli jákvæðrar og neikvæðrar gagnamiðaðrar markaðssetningar, bæði fyrir kjósandann og löggjafann. Þörf er á frekari rannsóknum á þessu sviði, sérstaklega í ljósi þess hversu nýtilkomið fræðisvið stjórnmálamarkaðs-setning er ásamt skjótari viðbrögðum stjórnvalda við tæknibyltingum. En líkt og sýnt er fram á í ritgerðinni gæti aðgerðarleysi rýrt enn frekar traust almennings til stjórnvalda, fært völdin frekar í hendur hinna efnameiri og fælt jaðarhópa frá þátttöku í lýðræðinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berglind Sunna Bragadóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32478
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32478

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berglind Sunna Bragadóttir 1992-. Gögn knýja allt sem við gerum : hvaða lýðræðislegu áskoranir rísa af gagnamiðaðri markaðssetningu stjórnmálaafla?. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32478