Back to results

Bifröst University

Einkenni árangursríkra frumkvöðla

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar var að skoða árangursþætti íslenskra frumkvöðla. Tilgangurinn var að kanna hvaða persónueinkenni og þættir það eru sem gera það að verkum að frumkvöðlar nái árangri og einnig hvort íslenskir frumkvöðlar sem ná árangri séu eins aðrir frumkvöðlar. Markmiðið er að geta svarað rannsóknarspurningunni um hver væru einkenni árangursríkra frumkvöðla á Íslandi og sanna eða afsanna þá rannsóknartilgátu að ekki væri munur á íslenskum frumkvöðlum og öðrum hvað þetta varðar. Til að svara þessu var gerð rannsókn á meðal íslenskra fjárfestingastjóra sem fjárfesta í fyrirtækjum íslenskra frumkvöðla og hugmyndum þeirra auk þess að hafa starfað lengi í nýsköpunar- og frumkvöðlaumhverfi. Rannsóknin byggði á eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem tekin voru opin djúpviðtöl við fjóra viðmælendur. Viðmælendur voru spurðir út í viðhorf sín og reynslu af þeim þáttum sem þeir töldu gera það að verkum að frumkvöðlar næðu árangri. Í ritgerðinni er einnig fjallað um aðferðafræðina sem notuð var, kosti hennar og galla ásamt því að einnig er fjallað á fræðilegan hátt um frumkvöðulinn, persónu-einkenni hans, árangursþætti og líkan kynnt til sögunnar sem notast var við í greiningunni. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að einkenni árangursríkra frumkvöðla á Íslandi eru: 1. Ástríða hans og helgun 2. Þrautseigja og dugnaður 3. Mannblendni, opinn persónuleiki, samskipti og persónutöfrar 4. Heppni Einnig að rannsóknartilgátan um að íslenskir frumkvöðlar sem ná árangri séu eins og aðrir árangursríkir frumkvöðlar í heiminum reyndist sönn og þeir árangursþættir sem skipta sköpum hvað árangur þeirra varðar eru þeir sömu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Stefán Claessen 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32455
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32455

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Stefán Claessen 1988-. Einkenni árangursríkra frumkvöðla. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32455