Back to results

Bifröst University

Er ég jafnmikils virði og áður? Upplifun fólks á eigin líðan eftir krabbameinsgreiningu og í tengslum við að koma aftur til vinnu eftir greiningu

Abstract

dc:description.abstract

Útdráttur Krabbameinsgreindum einstaklingum fjölgar og eftir því sem meðferðum fleygir fram þá lifa fleiri eftir meðferðir en um helmingur er undir 65 ára aldri. Vinna er stór hluti af lífi fólks og mikill tími af daglegu lífi er varið á vinnustað. Vinnuumhverfið hefur áhrif á upplifun, iðju, samskipti, heilsu, hamingju og velferð einstaklinga. Þótt rannsóknum fjölgi með árunum þá hefur minni áhersla verið lögð á að skilja áhrif krabbameins á daglegt starf, vinnufærni og atvinnu. Viðfangsefni þessa verkefnis er að skoða hver upplifun fólks er af því að koma aftur til vinnu eftir krabbameinsmeðferð með hliðsjón af afleiðingum sjúkdómsmeðferðar, stuðningi vegna sjúkdómsins og þess vinnuumhverfis sem það býr við. Engin íslensk rannsókn er til um efnið og er það því verðugt rannsóknarefni. Gerð var eigindleg rannsókn með viðtölum við fjórar konur og fjóra karlmenn, á aldrinum 36-66 ára, sem höfðu fengið krabbamein. Markmiðið var að gefa þátttakendum tækifæri til að tjá eigin upplifun og reynslu og varpa þannig ljósi á aðstæður í persónulega lífi þeirra eftir greiningu og meðferð. Skoða hvaða stuðning þau höfðu fengið vegna fylgikvilla meðferða og hvernig vinnuumhverfið var þegar þau snéru aftur til vinnu. Niðurstöður benda til þess að miklar breytingar hafi orðið á lífi allra þátttakenda eftir greiningu og meðferð sem höfðu í för með sér skert lífsgæði í daglegri iðju, í tómstundum sem og í vinnu. Niðurstöður eru settar fram í þrjú meginþemu sem varpa ljósi á reynslu og viðhorf þátttakenda: 1) Lífið eftir greiningu sem vísar til upplifunar á eigin líðan eftir greiningu. 2) Endurhæfing og stuðningur sem vísar til þeirrar virkni sem þau tóku þátt í og þeim stuðningi sem þau fengu eftir greiningu. 3) Hin vinnandi vera sem vísar í aðstæður á vinnustað, hæfni í vinnu, skilning og samhug, traust, hlustun, líðan, fræðslu, upplýsingagjöf og framtíðarsýn. Niðurstöður eru í takt við erlendar rannsóknir sem sýna að stór hluti þeirra sem snýr aftur til vinnu eftir greiningu og meðferð krabbameina glímir við fylgikvilla sem hafa áhrif á vinnugetu til styttri eða lengri tíma. Niðurstöður benda einnig til skorts á fræðslu og upplýsingum til stjórnenda um hvernig eigi að styðja einstaklinga sem snúa aftur til vinnu eftir veikindi. Rannsóknin hefur þannig gildi fyrir stjórnendur, samstarfsmenn og, í raun, samfélagið allt. Lykilorð: Krabbameinsgreindir, endurhæfing, endurkoma til vinnu eftir krabbameinsgreiningu, stuðningur á vinnustað.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erna Magnúsdóttir 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32453
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32453

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erna Magnúsdóttir 1964-. Er ég jafnmikils virði og áður? Upplifun fólks á eigin líðan eftir krabbameinsgreiningu og í tengslum við að koma aftur til vinnu eftir greiningu. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32453