Back to results

Bifröst University

Markaðsáætlun fyrir kláf upp á Eyrarfjall.

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari markaðsáætlun er gerð áætlun fyrir kláf upp á Eyrarfjall í Stórurð fyrir ofan Ísafjörð við Skutulsfjörð. Skutulsfjörður gengur inn úr Ísafjarðardjúpi en Ísafjarðardjúp nánast klýfur Vestfirði eftir endilöngu. Vestfirðir eru vestasti hluti Íslands og er í daglegu tali nefndur Vestfjarðakjálkinn. Við gerð markaðsáætlunarinnar var notast við annars stigs upplýsingar (e. secondary data) en það eru upplýsingar sem þegar hefur verið aflað. Notast var við kenningar og módel úr markaðsfræðum. Einnig hugtökin markaðshlutun, markaðsmiðun og aðgreining. Framkvæmd var SVÓT-greining sem greinir styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri í starfsemi kláfsins og var sett upp staðsetningarkort yfir markaðinn. Fyrirtækið var svo greint eftir ISAR-númeri. Greindir voru aðalkostnaðarliðir sem eru undir föstum kostnaði og breytilegum kostnaði og í framhaldinu settar upp þrjár næmnigreiningar. Að lokum var gerð markaðsáætlun til fimm ára sem er byggð á markaðshlutun og markaðsmiðun. Skoðuð var markaðshlutdeild Fjellheisen í Tromsö í Noregi, þar sem eru svipaðar markaðsaðstæður og gætu orðið á Ísafirði. Með þessum greiningum var ætlunin að svara rannsóknarspurningunni: Hver er rekstrargrundvöllur fyrir kláf upp á Eyrarfjall? Niðurstöður eru kynntar sem sýna að rekstrargrundvöllur er fyrir kláfi upp á Eyrafjall út frá sviðsmynd nr. 1. Rekstur kláfsins stendur undir sér miðað við þá markaðshlutdeild sem reiknuð var út sem er 28,82% eða 29.088 farþegar á ári. Rekstrarniðurstaða (EBITDA) var jákvæð um 97.241.617 kr. Að lokum skoðar höfundur skýrsluna með gagnrýnni hugsun og kemur með sínar athugasemdir um framkvæmd hennar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigþór Sigurðsson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32443
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32443

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigþór Sigurðsson 1973-. Markaðsáætlun fyrir kláf upp á Eyrarfjall.. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32443