Bifröst University
Bætt þjónusta og úrræði fyrir barnshafandi konur í Vestmannaeyjum
Abstract
dc:description.abstractFæðingarstöðum á Íslandi hefur farið fækkandi síðustu ár. Það getur reynst erfitt að halda uppi fæðingarþjónustu í svo fámennu og dreifbýlu landi eins og Íslandi. En engu að síður verður að koma í móts við konur og fjölskyldur þeirra sem eiga ekki kost á að fæða í heimabyggð og tryggja jöfnuð milli landsmanna. Ljóst er að það þarf að bregðast við ýmsum vandkvæðum varðandi skerta þjónustu og öryggi íbúa í Vestmannaeyjum. Tilgangur rannsóknar var að skoða hvaða leiðir er hægt að fara til að bæta þjónustu og hvaða úrræði geta verið í boði þegar nær dregur að fæðingu fyrir barnshafandi konur í Vestmannaeyjum. Í rannsókninni var notast við blandaðar rannsóknaraðferðir. Í eigindlegu rannsókninni var notast við hálfopin viðtöl við 3 viðmælendur með ákveðna þekkingu og reynslu á ákveðnum sviðum sem gagnast rannsókninni. Viðtölin voru svo greind og túlkuð ásamt því að flokka þau í þemu til að mynda eina heildarmynd. Tvær megindlegar rannsóknir voru gerðar í forritinu Monkey Survey og var notast við tvær viðhorfskannanir með lokuðum fjölvalsspurninga. Önnur viðhorfskönnunin náði til tiltekinna starfsmanna með viðeigandi menntun á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja og voru 5 sem tóku þátt í rannsókninni. Hin viðhorfskönnunin náði til tiltekinna sérfræðilækna á aðgerðar- og kvenna- og barnasviði á Landspítalanum og voru 28 sem tóku þátt í rannsókninni. Niðurstöður rannsóknar sýna að mikill áhugi er meðal starfsmanna á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja á starfsþróun og sumir hafa áhuga á því að sækja sér menntun í ómskoðun. Niðurstöður sýna einnig að ekki er mikill áhugi hjá sérfræðilæknum á að koma til Vestmannaeyja til að veita sérfræðiþjónustu sína. Einnig kom í ljós að viðmælendur voru á sama máli að auka þyrfti öryggi íbúa með sjúkraflutningum með styttri tíma, ásamt því að bæta þyrfti þjónustu og úrræði við barnshafandi kvenna í Vestmannaeyjum. Niðurstöður benda til að umræðan er þörf og styrkja þyrfti stoðir og ímynd við heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni þá sérstaklega Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja til að auka gæði og þjónustu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eva María Jónsdóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31889
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31889