Back to results

Bifröst University

Eru Vestfirðingar síður líklegir til þess að velja sér bíla knúna með rafmagni heldur en íbúar á höfuðborgarsvæðinu og hvers vegna?

Abstract

dc:description.abstract

Skýrsluhöfundur bar saman Vestfirði og höfuðborgarsvæðið sem stað fyrir bíl knúinn með rafmagni. Notast var við SVOT greiningu og PESTEL greiningu. Fengin voru gögn frá Samgöngustofu um nýskráningar á bílum árið 2017. Með þeim gögnum var hægt að bera saman orkugjafa og póstnúmer eiganda. Viðtöl voru tekin við rafbílanotendur og gerðar skoðanakannanir meðal íbúa á Vestfjörðum og höfuðborgarsvæðinu. Noregur er framarlega í rafbílavæðingu og var því ákveðið að skoða hvað þeir hafa verið að gera og bera saman við Ísland. Helstu niðurstöður verkefnisins sýna að bílar knúnir með rafmagni voru hlutfallslega fleiri á Vestfjörðum heldur enn höfuðborgarsvæðinu nýskráðir árið 2017. Munar þar mest um bíla sem eru bæði með rafmagnsmótor og venjulega vél. Mat höfundar er að Vestfirðingar eru ekki síður líklegir til að velja sér bíl knúinn með rafmagni. Til þess að hreinir rafmagnsbílar geti orðið vinsælli á Vestfjörðum þarf að tengja Vestfirði betur við hringvegin með hleðslustöðvum fyrir bílana. Íbúar Vestfjarða virðast vera almennt jákvæðir gagnvart bílum knúnum með rafmagni en benda á þann afmarka að geta ekki keyrt á milli landshluta á hreinum rafmagnsbíl án þess að eiga hættu á því að verða rafmagnlausir á leiðinni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bjarki Guðmundsson 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31510
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31510

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bjarki Guðmundsson 1979-. Eru Vestfirðingar síður líklegir til þess að velja sér bíla knúna með rafmagni heldur en íbúar á höfuðborgarsvæðinu og hvers vegna?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31510