Back to results

Bifröst University

CrossFit Viribus - viðskiptaáætlun : er næg eftirspurn fyrir uppbyggingu á nýrri CrossFit stöð á Suðurnesjum og er það fýsilegur kostur?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari BSc ritgerð metur höfundur hvort rekstur CrossFit stöðvar á Suðurnesjum sé fýsilegur og einnig arðbær ef tekið er tillit til núverandi stöðu en hún er sú að eingöngu er ein starfandi CrossFit stöð á Suðurnesjum. CrossFit Viribus yrði sérstæð CrossFit stöð að því leyti að í boði væri yoga fyrir CrossFit iðkendur stöðvarinnar ásamt köldum pottum og sauna. Lokaritgerðin er viðskiptaáætlun og mótast hún af þeim viðurkenndu aðferðum og hugmyndafræði sem NMI, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, hefur sett fram. Ritgerðin mun skera úr um hvort fýsilegt sé að stofna aðra CrossFit stöð á Suðurnesjum út frá þeim markaðslegu og rekstrarlegu forsendum sem niðurstöður ritgerðarinnar koma til með að sýna fram á. Höfundur telur mikilvægt fyrir mögulega fjárfesta að sjá þá arðsemi sem líkamsræktarstöð af þessu tagi getur haft í för með sér fyrir viðkomandi aðila. Áhugi höfundar á að skoða og meta þetta verkefni stafar af þeirri auknu fjölgun líkamsræktariðkenda á Íslandi og þeim gífurlega áhuga sem Íslendingar hafa á CrossFit iðkun en það má að hluta til þakka þeim góða árangri sem íslenskir keppendur hafa náð á heimsleikum CrossFit. Höfundur telur verkefni þetta geta orðið áhugavert og þá sér í lagi að skoða hvort iðkendur CrossFit telji yoga fara saman við CrossFit, en mikið er lagt upp úr teygjanleika á CrossFit æfingum. Einnig snýr áhugi höfundar að því hvort verkefni sem þetta sé arðbært m.t.t. staðsetningar og þann öra vöxt sem CrossFit hefur í för með sér. Höfundur miðar við að ef forsendur þessarar viðskiptaáætlunar gangi eftir muni fyrirtækið koma til með að skila hagnaði öll þrjú árin og gefa niðurstöður til kynna að verkefni þetta er bæði fýsilegt og arðbært.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anton Jarl Jóhannsson 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31507
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31507

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anton Jarl Jóhannsson 1991-. CrossFit Viribus - viðskiptaáætlun : er næg eftirspurn fyrir uppbyggingu á nýrri CrossFit stöð á Suðurnesjum og er það fýsilegur kostur?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31507