Back to results

Bifröst University

Þrjár íslenskar gestavinnustofur : tilviksrannsókn

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur og markmið rannsóknarinnar var að komast að því hverjar aðstæður þriggja gestavinnustofa sem starfa á Íslandi eru. Lögð var áhersla á að skoða tilgang stofnunar og starfs gestavinnustofanna, hvernig stjórnun er háttað innan þeirra og hver bakgrunnur stjórnenda þeirra er. Einnig var lögð áhersla á það hver helstu tækifærin séu í sambandi við rekstur og starfsemi þeirra og skoðað hverjar helstu áskoranirnar í því tilliti séu, hvernig starfsemin er fjármögnuð og hlut opinbers stuðnings í þeim málum. Markmið rannsóknarinnar var einnig að gefa eins konar yfirlit yfir þær gestavinnustofur sem starfræktar eru á landinu og þær því kortlagðar eða listaðar upp og helstu upplýsingar um þær skráðar. Rannsókn þessi byggir á aðferðum tilviksrannsókna og notaðar voru eigindlegar aðferðir við gagnaöflun og úrvinnslu gagna. Í upphafi rannsóknarinnar voru valin þrjú tilvik sem talin voru geta gefið góða sýn á aðstæður gestavinnustofa á Íslandi almennt og þau skoðuð sérstaklega. Notast var við ýmis konar gögn; skýrslur, bækur, opinber gögn, fréttir af netmiðlum, YouTube myndskeið og vefsíður svo eitthvað sé nefnt en auk þess voru tekin þrjú viðtöl, eitt við aðila innan hverrar þessara völdu gestavinnustofa. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að þó að gestavinnustofurnar séu langt frá því að vera allar eins eru aðstæður þeirra að mörgu leyti svipaðar. Rekstur gestavinnustofanna fer fram af mikilli hugsjón, áherslan er mest á listamanninn og hans starf. Auk þess koma gestalistamennirnir víða að úr heiminum en það virðist þó vera svo að þeir sem koma mest eru þeir sem koma lengst að. Niðurstöðurnar sýndu að rekstur á fyrirtæki eins og gestavinnustofu er mikil vinna og nauðsynlegt að þeir sem komi að rekstri og stjórnun hafi þekkingu á listaheiminum og að lágmarki reynslu í stjórnun. Reksturinn er langt því frá að vera auðveldur og eru fjárhagsmálin þar efst á lista yfir helstu áskoranir. Tækifærin eru samt sem áður mörg og kom í ljós að stjórnendur gestavinnustofanna eru yfirleitt með fleiri en eitt járn í eldinum samhliða hefðbundnum gestavinnustofurekstri. Í niðurstöðunum kom það einnig fram að gestavinnustofurnar hafa mikil og jákvæð áhrif á samfélagið þar sem þær eru starfræktar. Sé rétt haldið á spilunum geta margföldunaráhrif rekstursins því verið mikil.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hróðný Kristjánsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29765
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29765

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hróðný Kristjánsdóttir 1985-. Þrjár íslenskar gestavinnustofur : tilviksrannsókn. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29765