Back to results

Bifröst University

Breytingastjórnun : samruni Sæferða og Eimskips

Abstract

dc:description.abstract

Hugtakið breytingarstjórnun má skilgreina sem skipulagða nálgun til að breyta að hluta eða öllu leyti skipulagsheildum. Með því að beita þekktum aðferðum sem reynst hafa vel má auðvelda starfsfólki og viðskiptavinum umskiptin og tryggja að útkoman verði sem best fyrir framtíð skipulagsheildarinnar. Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er eftirfarandi: Voru kenningar í breytingarstjórnun hafðar að leiðarljósi við samruna Sæferða og Eimskips? Notast er við eigindlegar rannsóknaraðferðir við rannsóknina þar sem tekin eru viðtöl við fjóra einstaklinga sem starfa hjá Sæferðum og Eimskip, voru þeir valdir vegna þess að þeir hafa starfað hjá fyrirtækinu síðan fyrir breytingar og þekkja því til bæði fyrir og eftir sameiningu. Fræðilegi hluti verkefnisins fjallar meðal annars um breytingarþörf, mismunandi tegundir breytinga, átta skrefa þrep Kotters, þriggja skrefa módel Lewins og vinnustaðamenningu svo eitthvað sé nefnt. Niðurstöður benda til þess að kenningar í breytingarstjórnun hafi verið hafðar til hliðsjónar við samruna Eimskips og Sæferða. Starfsmenn voru vel upplýstir, óttuðust ekki um störf sín og eru ánægðir með hvernig staðið var að þessu ferli.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna Sesselja Jónsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29748
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29748

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna Sesselja Jónsdóttir 1990-. Breytingastjórnun : samruni Sæferða og Eimskips. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29748