Back to results

Bifröst University

Heilsueflandi samfélag : innleiðingarferli í opinberum rekstri

Abstract

dc:description.abstract

Nokkur sveitarfélög á landinu hafa stigið fyrsta skrefið og skrifað undir samstarfsyfirlýsingu við Embætti landlæknis um verkefnið heilsueflandi samfélag. Rekstur opinberra stofnanna byggir á forskriftarnálgun þar sem breytingar fara í gegnum mikið skrifræði. Það er mikilvægt að skýr markmið og framtíðarsýn haldi vel utan um þau verkefni sem unnið er að í stefnumótuninni og að þau endurspegli á einhvern hátt stefnu sveitarfélaganna í heild sinni. Opinber rekstur byggir fyrst og fremst á því að veita grunnþjónstu til íbúa óháð hagnaði og er því um samfélagslega þjónustu að ræða (Lynch, 2015). Heilsueflandi stefnumótun ýtir undir þverfaglegt samstarf hagsmunaaðila innan sveitarfélaganna sem ætti að efla og auka við þekkingu og fræðslu þegar til lengri tíma er litið. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna stöðu innleiðingar heilsueflandi samfélags meðal sex sveitarfélaga á landinu. Tekin voru eigindleg viðtöl við einstaklinga sem starfa innan sveitarfélaga sem hafa nú þegar skrifað undir samning við Embætti landlæknis. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að þrátt fyrir göfug verkefni hafa sveitarfélögin ekki gefið sér nægilegan tíma til þess að undirbúa og framkvæma innleiðingu heilsueflandi samfélags á faglegan hátt. Fáir hafa sett sér markmið og er því framtíðarsýn takmörkuð við það. Nokkuð er um hindranir í innleiðingarferli og má þá helst nefna tímaskort, skort á fjármagni og erfiðleika við að ná til samfélagsins. Niðurstöðurnar gefa til kynna fylgni á milli skorts á markmiðasetningu og framtíðarsýnar og stöðu verkefnanna innan einstaka sveitarfélaga. Lykilhugtök: Heilsueflandi samfélag, stjórnsýsla, breytingastjórnun, innleiðing.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Kristín Sæbjörnsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29717
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29717

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Kristín Sæbjörnsdóttir 1984-. Heilsueflandi samfélag : innleiðingarferli í opinberum rekstri. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29717