Back to results

Bifröst University

Viðhorf til vinnu og siðferði á vinnustað : viðhorf fólks til vinnu og þess þegar siðferðisgildum er ýtt til hliðar til að auka hagnað/sparnað í fyrirtækjum eða stofnunum.

Abstract

dc:description.abstract

Fræðilegur hluti ritgerðar fjallar um viðskiptasiðfræði og viðhorf fólks til vinnu út frá kenningum Joseph DesJardins. Fjallað er um siðfræði og viðskiptasiðfræði út frá hinum ýmsu kenningum og nálgunum sem settar hafa verið fram af fræðimönnum heimspekinnar. Þannig freistaðist höfundur til að útskýra þær mörgu og margvíslegu breytur sem hafa áhrif á siðferðilega hegðun í viðskiptum. Höfundur setti fram spurningalistakönnun á samfélagsmiðil og fengust fimmhundruð nothæf svör. Rannsóknin var til þess gerð að kanna viðhorf fólks til vinnu, hvert viðhorf þeirra væri gagnvart því þegar siðferðilegum gildum er ýtt til hliðar til að auka á hagnað/sparnað í fyrirtæki eða stofnun og að kanna hvort tengsl væru milli þessara viðhorfa. Einnig þótti höfundi mikilvægt að skoða hvort hegðun varðandi siðferðileg álitamál væri í takt við skoðanir. Í ljós kom að langflestir þátttakenda könnunarinnar tengdu sig best við það sem DesJardins kallar frjálslynda módelið, en þó var einnig hluti þátttakenda sem tengdi sig best við mannlega þarfamódelið eða höfðu hefðbundna sýn á vinnu (sjá nánar í kafla 4). Flestum þátttakenda þótti ekki í lagi að breyta rangt gagnvart viðskiptavini/skjólstæðingi. Hærra hlutfall karla en kvenna þótti í lagi að breyta rangt en engum sem tengdi sig best við mannlega þarfamódelið þótti það í lagi. Ekki virðist haldast í hendur viðhorf sumra þátttakenda til þess að gera rangt og sú staðreynd hvort þeir hafi breytt rangt gagnvart viðskiptavini/skjólstæðingi en einhverjir sem tengdu sig best við mannlega þarfamódelið og töldu það ekki rétt að breyta rangt höfðu engu að síður breytt rangt gagnvart viðskiptavini/skjólstæðingi. Niðurstöður voru sumpart í takt við þær tilgátur sem höfundur lagði fram en að einhverju leiti komu niðurstöður á óvart.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sandra Björg Gunnarsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29704
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29704

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sandra Björg Gunnarsdóttir 1985-. Viðhorf til vinnu og siðferði á vinnustað : viðhorf fólks til vinnu og þess þegar siðferðisgildum er ýtt til hliðar til að auka hagnað/sparnað í fyrirtækjum eða stofnunum.. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29704