Back to results

Bifröst University

Umboðsvandi í íslensku og erlendu viðskiptalífi

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er fjallað um umboðskenninguna og þætti innan hennar, nánar tiltekið umboðsvanda og umboðskostnað. Fjallað er fræðilega um þessi hugtök, sagt frá sambandi umboðsveitanda (e. principal) og umboðsþega (e. agent), hvernig þessir aðilar nálgast samningaborð með ósamhverfar upplýsingar og hvaða áhrif það hefur á framvindu sambands þeirra. Dregin eru fram tvö fræg dæmi erlendis frá þar sem umboðsvandinn kemur við sögu sem og dæmi frá íslensku viðskiptalífi. Fyrra erlenda dæmið fjallar um Enron málið þar sem stjórnendur fóru langt fram úr umboði sínu við rekstur fyrirtækisins, stundum í samvinnu við stjórn og endurskoðendur en einnig án þess að bera málin undir þessa aðila, hvernig Enron faldi tap sitt í félögum á aflandseyjum sem ekki þurfti að gera grein fyrir í efnahagsreikningi og hvernig stjórnendur seldu hluti sína í fyrirtækinu vitandi það að rekstur þess gengi illa en án þess að láta aðra hluthafa vita. Hitt erlenda dæmi sem tekið er kemur frá Danmörku, IT Factory málið. Þar var aðal gerandi málsins forstjóri og eigandi sem gerði samninga við lánadrottna án þess nokkurn tímann að hafa í hyggju að halda þá. Íslensk dæmi eru nefnd til sögunnar til að draga fram hvernig stjórnarmenn þurfa að sæta ábyrgð gjörða sinna og hvernig þeir geta skapað umboðsvanda með því að mismuna hluthöfum fyrirtækja þannig að sumir hluthafanna beri skarðan hlut frá borði, hvernig stórir hluthafar reyna að þvinga fram útkomu í sína þágu á kostnað minni hluthafa og hvernig siðavandi veldur því að menn brjóta þá samninga sem þeir hafa gert. Niðurstöður eru í stuttu máli þær að hægt er að reyna að koma í veg fyrir umboðsvanda með því að tengja hagsmuni stjórnenda við rekstur fyrirtækis með umbunarkerfi og hafa eftirlit með rekstrinum í gegnum óháða endurskoðendur og yfirvöld. Slíkt er þó vandmeðfarið því mannlegt eðli er brigðult, engir samningar eru fullkomnir og því alltaf hætta á því að mótaðilar í samningum finni leið framhjá skilyrðum þeirra

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Tómas Örn Sigurbjörnsson 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2935
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2935

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Tómas Örn Sigurbjörnsson 1974-. Umboðsvandi í íslensku og erlendu viðskiptalífi. 2009. http://hdl.handle.net/1946/2935