Back to results

Bifröst University

Asco Harvester ehf. : könnun á rekstrargrundvelli Asco Harvester ehf.

Abstract

dc:description.abstract

Fyrir aldamótin 1000 var sjósókn og fiskveiðar helsta aukabúgrein bænda. Ekki leið á löngu áður en sjósókn var orðin aðalbúgrein Íslendinga og hefur spilað stóran þátt í viðskiptum Íslendinga við hinn stóra heim. Um aldaraðir hafa Íslendingar nytjað sjávarplöntur, ýmist til munns eða áburðar. Á seinni hluta síðustu aldar, með tilkomu þörungaverksmiðju á Reykhólum, hófst útflutningur á mjöli sem unnið er úr þangi. Aðdragandi að vali á viðfangsefni þessa verkefnis má rekja til þess að þær vélar sem notaðar hafa verið til þangsláttar á Íslandi eru komnar til ára sinna. Þegar hönnuður Asco fór að leita að sjávarsláttuvél út í heimi kom í ljós að enginn var að framleiða vél sem hentar við erfiðar aðstæður eins og eru við strendur Íslands. Út frá því fór af stað ákveðið hönnunarferli sem svo varð til þess að fleiri möguleikar opnuðust. Þegar verkefnið var kynnt hér heima og erlendis kom í ljós að áhugi var fyrir svona vélum og hlaut verkefnið styrki sem kom smíði af stað. Könnun þessi á rekstrargrundvelli Asco Harvester ehf. er gerð til að varpa ljósi á framtíðarmöguleika fyrirtækisins. Við vinnslu verkefnisins voru gerðar greiningar á ytra og innra umhverfi fyrirtækisins ásamt því að skoða fjárhag til næstu fimm ára. Niðurstöður gefa til kynna að verkefnið geti orðið arðbært og komið að ólíkum markaði. Þó er einnig ljóst að fyrirtækið er næmt fyrir breytingum og þarf að huga vel að því að fylgja áætlunum til að ná settum markmiðum. Vonast er til að könnunin færi eigendum Asco Harvester ehf. verkfæri sem aðstoðað geta við áframhaldandi þróun á rekstri og framleiðslu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Ólöf Kristjánsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29173
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29173

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Ólöf Kristjánsdóttir 1983-. Asco Harvester ehf. : könnun á rekstrargrundvelli Asco Harvester ehf.. 2017. http://hdl.handle.net/1946/29173