Back to results

Bifröst University

"Ísland er svo lítið land, það eru allir orðnir hundleiðir á Erró og Kjarval" : viðhorf íslenskra háskólanema til listasafna

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna áhuga og reynslu háskólanema af listasöfnum, hversu virkan þátt þeir taki í lista- og menningarlífi, einkum í tilfelli listasafna. Rannsakað var hvaða þættir valda því eða hamla að háskólanemar fara á listasöfn. Skoðað var hvort þættir eins og menntun, uppeldi, félagslegur bakgrunnur og fyrirmyndir hefðu áhrif á menningarþátttöku og listáhuga háskólanema og hvort vægi meira í því samhengi; listmenntun eða háskólamenntun. Framkvæmd var blönduð rannsókn með því að tekin voru eigindleg viðtöl við 10 háskólanema og sérfræðingaviðtöl við sex starfsmenn listasafna til að fá sitt hvort sjónarhornið á viðhorfi þessara hópa gagnvart listasöfnum og háskólanemum sem markhóp. Þegar gagnagreiningu viðtala var lokið, var í framhaldi útbúin spurningakönnun út frá þeim upplýsingum sem komu fram í viðtölunum og lögð fyrir háskólanemendur fimm háskóla víðs vegar um landið. Spurningakönnunin náði líka yfir fyrrverandi háskólanemendur sem og listnema. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að viðhorf háskólanema gagnvart listasöfnum og myndlist er mun jákvæðara en rannsakandi hafði búist við, einnig var menningarþátttaka háskólanema meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Fram kom að karlkyns háskólanemar taka virkari þátt í lista- og menningarlífi heldur en kvenkyns háskólanemar. Fylgni er milli listmenntunar háskólanema, listmenntunar foreldra, menningarþátttöku í æsku, tónlistariðkunar, bóklestrar í æsku og menningarþátttöku og listáhuga háskólanema síðar meir. Þá virðist habitus háskólanema taka breytingum í gegnum menntun, einkum listmenntun, uppeldi og félagsleg áhrif. „Sýningin“, „fræðsla og „dægrastytting“ eru helstu ástæður þess að háskólanemar fara á listasöfn en „tímaskortur“ og „önnur afþreying “ valda því að þeir fara ekki oftar. Lykilorð: Háskólanemar, listasöfn, listmenntun, menningarneysla, menningarþátttaka.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna María Bjarnadóttir 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28418
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28418

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna María Bjarnadóttir 1975-. "Ísland er svo lítið land, það eru allir orðnir hundleiðir á Erró og Kjarval" : viðhorf íslenskra háskólanema til listasafna. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28418