Bifröst University
Hlutfall mæðra og feðra sem falin er forsjá barns : hefur meginreglan um jafnrétti kynjanna áhrif á niðurstöðu máls þegar dómari tekur ákvörðun um forsjá barns?
Abstract
dc:description.abstractHér á landi ríkir sá misskilningur að þegar foreldrar deila um forsjá barns, sé móður falin forsjá í meirihluta tilfella og að til þess að föður sé falin forsjá þurfi móðir að sýna af sér mikla vanrækslu gagnvart barninu. Í 34. gr. barnalaga eru talin upp hvaða atriði það eru sem dómari á að líta til þegar tekin er ákvörðun um forsjá barns, þau eru eftirfarandi: hæfni foreldra, stöðugleiki í lífi barns, tengsl barns við foreldra sína, umgengnisréttur, hætta á ofbeldi á heimili barns, vilji barns og systkinahópur. Ekki er um tæmandi talningu að ræða. Í þeim tilgangi að meta hvort meginreglan um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla hefði áhrif á niðurstöður í forsjármálum var gerð ítarleg rannsókn á úrlausnum Hæstaréttar. Til skoðunar voru 63 hæstaréttardómar, þar sem móður var falin forsjá í 33 málum eða í 52% tilfella. Föður var falin forsjá í 27 málum eða í 43% tilfella, en aðeins í þremur málum var systkinahópi skipt milli foreldra eða í 5% tilfella. Þegar litið er á niðurstöður mála má sjá að dómari lítur ávallt til hagsmuna barnsins þegar tekin er ákvörðun um forsjá þess. Jafnrétti kynjanna hefur því ekki áhrif á niðurstöðu í forsjármálum. Þegar litið var á prósentuhlutfall við hvert atriði fyrir sig, sem dómari hefur til hliðsjónar mátti sjá afgerandi mun á ýmsum sviðum, sem mætti túlka þannig að jafnrétti sé ekki að fullu náð á öðrum sviðum samfélagsins, sem hafa áhrif á niðurstöðu í forsjárdeilum foreldra.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Thelma Dögg Theódórsdóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28398
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28398