Bifröst University
Þetta er bara bévítans hark : veruháttur íslenskra óperusöngvara og upplifun af starfsvettvangi
Abstract
dc:description.abstractRannsóknin er unnin út frá kenningum Bourdieu þar sem markmiðið er að varpa ljósi á tónlistarveruhátt (e. musical habitus) íslenskra söngvara, kortleggja leikreglur klassíska söngvettvangsins frá sjónarhóli söngvara og varpa ljósi á hvernig íslenskir söngvarar upplifa starf sitt á Íslandi og erlendis. Höfundur er sjálfur klassískt menntaður óperusöngvari og þekkir af eigin reynslu og frásögnum kollega sinna hversu torveld söngbrautin getur verið. Meginefniviður rannsóknar eru hálfopin eigindleg viðtöl við átta söngvara af báðum kynjum. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að viðmælendur höfðu allir notið ríks tónlistaruppeldis í foreldrahúsum og þjálfað tónlistarveruháttinn með söng. Drifhvötin til þess að leggja sönginn fyrir sig virðist aðallega vera ánægjan af því að syngja og leika. Söngvarar færa ýmsar fórnir til að mega fást við það. Þeir læra margir að sætta sig við að vera valdalitlir á vettvanginum, með lítið starfsöryggi, bág kjör og starfsmöguleika. Félagsauður er mikilvægur til þess að verða sér úti um verkefni og jarðarfararsöngur og söngkennsla virðist vera stöðugusta tekjuleiðin á Íslandi. Mögulegar ástæður kulnunar og brotthvarfs úr starfi eru; framkomukvíði, söngtæknileg vandamál, lítið starfsöryggi og sjálfsákvörðunarvald. Kynjamismunun og kynferðisleg áreitni er einnig þekkt vandamál meðal kvenna. Flestir söngvaranna sögðust ekki geta ráðlagt öðrum að velja þennan starfsvettvang.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ása Fanney Gestsdóttir 1976-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28381
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28381