Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er fjallað um tengsl núvitundar við leiðtogafræði. Rannsóknarspurningin í ritgerðinni er: Hefur ástundun núvitundar áhrif á leiðtogafærni? Til að svara rannsóknarspurningunni var gerð rannsókn sem send var á þátttakendur sem sótt höfðu stjórnendanámskeiðið „Mindful Leadership“ í Opna háskólanum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru bornar saman við tvær aðrar kannanir sem lagðar höfðu verið fyrir sömu þátttakendur fyrir námskeið og um þremur vikum eftir námskeið. Helstu niðurstöður eru að ástundun núvitundar hefur áhrif á leiðtogafærni. Könnuninni var skipt upp í sex þemu sem hægt var að bera saman á milli kannana og í fimm af þeim var mælanlegur munur á niðurstöðum þeirra sem stunda óformlega núvitund, að minnsta kosti þrisvar í viku, með því að taka andrými í dagsins önn og þeirra sem ekki stunda hana reglulega. Niðurstöður í þessari rannsókn eru í samræmi við niðurstöður úr þeim fjölmörgu rannsóknum sem gerðar hafa verið síðastliðin ár um núvitund. Störf og verkefni leiðtoga eru krefjandi. Til að vera framúrskarandi leiðtogi þarf að þjálfa tilfinningagreind. Rannsóknir hafa sýnt fram á að hægt er að auka tilfinningagreind með athyglisþjálfun og að besta leiðin til að þjálfa hana sé með núvitund. Mesta áskorunin fyrir önnum kafna leiðtoga er að setja núvitund inn í sín daglegu verkefni. Margar skipulagsheildir erlendis eru farnar að bjóða starfsfólki sínu upp á núvitundarþjálfun vegna þess ávinnings sem sú ástundun hefur fyrir leiðtoga, starfsmenn og skipulagheildir. Ætla má að niðurstöður rannsókna um áhrif núvitundarþjálfunar muni opna leið hennar enn frekar í viðskiptaheiminn hér á landi sem annars staðar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Margrét Sigurbjörnsdóttir 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28316
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28316