Back to results

Bifröst University

Djúpahlíð ehf. : rekstrargrundvöllur með tilliti til þróunar ferðaþjónustunnar.

Abstract

dc:description.abstract

Lokaritgerð þessi er viðskiptaáætlun fyrir fyrirtækið Djúpahlíð ehf. Fyrirtækið var stofnað á vormánuðum árið 2016 og er markmið fyrirtækisins að bjóða erlendum ferðamönnum gistingu í námunda við fjölfarna ferðamannastaði, svo sem Þingvelli, Kerið í Grímsnesi, Gullfoss og Geysi. Fyrirtækið hefur nú þegar fest kaup á tveimur heilsárshúsum og hafið vinnu við standsetningu þeirra fyrir útleigu. Ritgerð þessari er ætlað að svara hvort grundvöllur sé fyrir rekstri fyrirtækisins með tilliti til þróunar í ferðaþjónustu síðustu ár og hugsanlegrar framtíðarþróunar. Ritgerðin tekur á fjölmörgum fræðilegum þáttum og má þar helst nefna framboð (e. supply) og eftirspurn (e. demand), markaðs- og samkeppnisgreining sem tekur til innra og ytra umhverfi fyrirtækisins. Reiknaður var stofnkostnaður fyrirtækisins og notast var við sviðsmyndagreiningu fyrir sölu- og rekstraráætlun. Farið var yfir áætlun sjóðstreymis, rekstrarreiknings og efnahagsreiknings, auk þess voru framkvæmdar núllpunktsgreining og næmnigreining. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að rekstur sem þessi geti vel borgað sig og verið arðbær sé stígandi í nýtingu gistirýma á milli ára. Það ber þó að hafa í huga að margir óvissuþættir hafa áhrif á rekstrargrundvöll fyrirtækisins til framtíðar. Þessir óvissuþættir snúa að mestu leyti að ferðaþjónustunni til framtíðar og umhverfi fyrirtækja í ferðaþjónustu. Ef áfram heldur sem horfir og fjöldi ferðamanna haldi áfram að vaxa líkt og síðustu ár má þó leiða líkum að því að fyrirtækið geti vel staðið undir sér og verið eigendum sínum arðbært til lengri tíma.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhannes B. Pétursson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26868
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26868

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhannes B. Pétursson 1987-. Djúpahlíð ehf. : rekstrargrundvöllur með tilliti til þróunar ferðaþjónustunnar.. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26868