Bifröst University
Er mismunur á starfsánægju eftir þjóðerni starfsfólks? : Könnun meðal starfsmanna Fiskvinnslunnar Íslandssögu
Abstract
dc:description.abstractÞað er mikilvægt fyrir stjórnendur að starfsmenn sýni áhuga og dugnað í starfi. Einn af mikilvægustu þáttum í starfsumhverfi fyrirtækja er starfsánægja. Með góðri starfsánægju nær fyrirtækið fram meiri framleiðni hjá starfsfólki sínu og þar af leiðandi er ákjósanlegast að samskipti starfsmanna og stjórnenda séu með besta móti til að öllum líði sem best. Hjá Fiskvinnslunni Íslandssögu hf. eru flestir starfsmenn af erlendu bergi brotnir og þeir koma frá ólíkum löndum. Þörfin á skýrum og góðum samskiptum er því mikilvæg eigi allir að hafa jafna möguleika á því að sinna sínu starfi eins og best verður á kosið, svo ekki sé minnst á að framleiðnin verði sem mest. Markmið þessa verkefnis var að greina starfsánægju meðal starfsmanna fyrrnefndrar fiskvinnslu og ætlar höfundur að kanna hvort mismunur sé á starfsánægju eftir þjóðerni starfsmanna. Ritgerðin er byggð á megindlegri aðferðafræði í formi spurningakönnunar. Hún var lögð fyrir alla starfsmenn nema höfund ritgerðarinnar, sem jafnframt er starfsmaður fyrirtækisins. Einnig er unnið með fræðilegt efni sem tengist umfjöllunarefninu, farið yfir skilgreiningar á starfsánægju og þeim þáttum sem tengjast henni og skoðaðar verða rannsóknir og kannanir sem hafa verið gerðar í tengslum við innflytjendur. Niðurstöður spurningakönnunarinnar leiddu í ljós að mismunur er á starfsánægju eftir þjóðerni. Miðað við niðurstöðurnar er meiri starfsánægja meðal Íslendinga, Filippseyinga og Taílendinga en minni ánægja meðal Pólverja. Niðurstöður gefa einnig til kynna að starfsfólk sé mjög opið fyrir breytingum til að bæta starfsánægju á vinnustaðnum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Tara Óðinsdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26824
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26824