Bifröst University
Þjónandi forysta og sjálfræði í starfi starfsmanna í stjórnsýslu sveitarfélaga
Abstract
dc:description.abstractMikilvægt er fyrir stjórnsýslu sveitarfélaga að rýna í hvaða breytinga er þörf til að mæta þeim áskorunum sem sveitarfélög standa frammi fyrir en rannsóknir á stjórnun og starfsumhverfi starfsmanna í stjórnsýslu sveitarfélaga eru fáar. Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar er hugmyndafræði þjónandi forystu sem snýst um að hafa áhuga og hlusta á hugmyndir annarra, efla og hvetja aðra til sjálfstæðis og ábyrgðar í lífi og starfi. Fyrri rannsóknir hér á landi og erlendis, á sviði þjónandi forystu, hafa sýnt jákvæð tengsl við starfsánægju, sjálfræði og skapandi hugsun en engin rannsókn er til um þjónandi forystu og stjórnsýslu sveitarfélaga svo vitað sé. Til að auka þá þekkingu sem fyrir er um þjónandi forystu og um starfsumhverfi starfsmanna í stjórnsýslu sveitarfélaga, var ákveðið að kanna vægi þjónandi forystu í stjórnsýslu sveitarfélaga og skoða hvort tengsl væru á milli einkennandi þátta þjónandi forystu og mats starfsmanna á sjálfræði í starfi. Gerð var spurningakönnun sem náði til um 600 starfsmanna hjá sjö sveitarfélögum. Mælitækið Servant Leadership Survey var notað auk spurninga um sjálfræði í starfi. SLS listinn er þáttaskiptur og niðurstöður voru greindar eftir þeim þáttum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þjónandi forysta er til staðar í stjórnsýslu sveitarfélaga og að starfsmenn njóta sjálfræðis í starfi að einhverju leyti. Rannsóknin sýnir að marktæk fylgni er á milli heildarmælingar þjónandi forystu og sjálfræðis í starfi, sem er í samræmi við niðurstöður fyrri rannsókna. Niðurstöður gefa til kynna að þjónandi forysta er hugmyndafræði og leiðtogaaðferð sem ástæða er fyrir stjórnsýslu sveitarfélaga að skoða nánar til að stuðla að aukinni framþróun og nýsköpun í stjórnsýslu sveitarfélaga og er ástæða til að rannsaka þetta efni nánar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Magnea Steinunn Ingimundardóttir 1968-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26811
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26811