Abstract
dc:description.abstractÚtgangspunktur þessa verkefnis er að rýna í verkefnið List í 365 daga sem höfundur þessa rannsóknarverkefnis átti þátt í að framkvæma og gera að veruleika. Markmið rannsóknarverkefnisins er að leitast við að skoða það ferli sem miðlun og útgáfa á sjónlistum er, en einnig að varpa ljósi á þann vanda sem blasir við þegar framkvæma á hugmynd sem er ný af nálinni. Með því að skoða þátt minn í framkvæmdinni og skjalfesta í dagbók vonast ég til þess að þeir sem standa í svipuðum sporum geti nýtt sér verkefnið til góðs. Það eru ekki til margar rannsóknir sem fjalla um útgáfu sjónlista eða um sjónlistamenn, þann markað sem greinar sjónlista skapa og þau áhrif sem sjónlistir hafa í menningunni. Það er einlæg ósk mín að hér verði úr bætt því hér eru mikil verðmæti undir. Það kemur glögglega fram í þessu rannsóknarverkefni að listtengd útgáfa af því tagi sem höfundur stuðlaði að er mjög dýr og ekki á færi einstaklinga en um leið þá er þó nokkur ánægja listamanna með verkefnið. Það kom einnig fram að listamenn í miklum meirihluta töldu ávinning fyrir sig persónulega að taka þátt í verkefninu og ávinning fyrir heildarsýn og samhyggð í sjónlistum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Lind Völundardóttir 1955-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25168
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25168