Back to results

Bifröst University

"Fólk vill ekki bíða, bara bóka sig sjálft 24/7" : Hafa fyrirtæki í ferðaþjónustu tæknilega getu til að ná til hins upplýsta ferðamanns?

Abstract

dc:description.abstract

Atvinnugreinin ferðaþjónusta gengur nú í gegnum stórstígar breytingar hér á landi. Þessar breytingar eiga nokkrar orsakir en tvær helstu eru gríðarmikil fjölgun ferðamanna síðustu ár og miklar tæknibreytingar sem hafa áhrif á samkeppnisumhverfi greinarinnar. Í þessu verkefni eru tengsl ferðaþjónustu og stafrænnar tækni skoðuð, notkun fyrirtækja í ferðaþjónustu á stafrænni tækni, viðhorf þeirra til hennar og helstu hvatar og hindranir varðandi hagnýtingu tækninnar rannsökuð. Markmið verkefnisins var að skoða hvort til staðar væri stafræn gjá (e. digital divide) milli aðalmarkhóps íslenskrar ferðaþjónustu, „hins upplýsta ferðamanns“ og fyrirtækja í ferðaþjónustu og hvort stafræn röskun (e. digital disruption) hafi breytt samkeppnisumhverfinu í ferðaþjónustu. Misræmi í stafrænni getu ferðamanna og fyrirtækja í ferðaþjónustu skapar ójafnvægi ef ferðamenn geta til dæmis ekki átt í samskiptum við fyrirtækin í gegnum þá miðla sem þeim er tamt að nota. Lítil tæknileg geta hefur einnig áhrif á möguleika fyrirtækja til að hagnýta tæknina við nýsköpun og vöruþróun. Fyrirtæki á lágu tæknistigi nær auk þess ekki að grípa tækifæri til hagræðingar sem tæknin getur opnað. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að til staðar sé stafræn gjá og að einungis þriðjungur fyrirtækja í ferðaþjónustu hafi nægilega mikla tæknilega getu til að ná beint til hins upplýsta ferðamanns eftir þeim stafrænu leiðum sem slíkir ferðamenn velja í auknum mæli.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25160
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25160

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir 1967-. "Fólk vill ekki bíða, bara bóka sig sjálft 24/7" : Hafa fyrirtæki í ferðaþjónustu tæknilega getu til að ná til hins upplýsta ferðamanns?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25160