Back to results

Bifröst University

Af hverju dansar þú salsa? : viðhorf áhuga salsadansara til salsadans á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar var að kanna viðhorf áhuga salsadansara á Íslandi til salsadans. Markmiðið var að skoða af hverju fólk dansar salsa og hvaða ávinning það hefur af því að dansa salsa. Fræðilegur hluti viðfangsefnisins fjallaði meðal annars um dans, hlutverk dansins, rannsóknir á salsadansi og öðrum félagslegum dönsum, auk þess sem rætt var um persónulegan ávinning sem áhuga salsadansarar hljóta af því að dansa salsa. Í þessari rannsókn var eigindlegum rannsóknaraðferðum beitt og notast var við tvo rýnihópa með 12 þátttakendum. Rannsóknin fór fram dagana 9. og 12. september 2015 og voru allir viðmælendur virkir þátttakendur í salsasamfélaginu á Íslandi. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að salsadans veiti dönsurunum mikinn persónulegan ávinning og mikla gleði. Félagslegur ávinningur skiptir dansarana mjög miklu máli og félagskapurinn getur verið jafn mikilvægur og sjálfur dansinn. Líkamlegur og andlegur ávinningur skiptir dansarana einnig miklu máli, þar sem dansinn hefur jákvæð áhrif á huglægt ástand dansaranna, veitir þeim mikla gleði og er auk þess líkamsrækt. Niðurstöðurnar benda til að dansinn hafi jákvæð áhrif á sjálfstraust dansaranna og mótandi áhrif á sjálfsímynd þeirra. Dansararnir upplifa dansinn einnig sem leið til að fá útrás fyrir sköpunarkraftinn og hann veitir þeim auk þess tækifæri til að tjá sig á annan hátt með líkamanum en á öðrum sviðum lífsins. Niðurstöðurnar veita nýstárlega sýn á salsasamfélagið á Íslandi og vonandi verður þessi rannsókn kveikjan að fleiri rannsóknum á félagslegum dönsum á Íslandi. Lykilorð: Dans, salsadans, persónulegur ávinningur, sköpun, tjáning, gleði, sjálfsímynd, sjálfstraust, félagsskapur, dansmenning, líkamleg menning, habitus.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hugrún Ósk Guðjónsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25155
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25155

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hugrún Ósk Guðjónsdóttir 1985-. Af hverju dansar þú salsa? : viðhorf áhuga salsadansara til salsadans á Íslandi. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25155