Back to results

Bifröst University

Gæði, magn og vilji - ferðamönnum ylji : hvernig getur Ísland höfðað betur til lúxusferðamanna?

Abstract

dc:description.abstract

Megintilgangurinn með þessari rannsókn er að skoða lúxusferðaþjónustu á Íslandi og greina hvort tækifæri séu til að mæta þörfum lúxusferðamanna betur en gert er í dag. Ferðaþjónustan er orðin einn af máttarstólpum atvinnulífsins og þótti höfundi áhugavert að skoða þennan markhóp sérstaklega. Í fræðilegum kafla ritgerðarinnar er fjallað um ferðaþjónustuna í heild og þá markhópagreiningu sem hefur átt sér stað hérlendis. Þá er lúxus skilgreindur og hvað það er sem einkennir lúxusferðaþjónustu. Höfundur tók ákvörðun um að notast við eigindlegar rannsóknaraðferðir til að fá innsýn inn í reynsluheim þeirra viðmælenda sem fyrir valinu urðu. Tekin voru viðtöl við þrjá reynslumikla aðila í lúxusferðaþjónustu sem hafa fjölbreytilega snertingu við viðfangsefnið. Meginniðurstaða rannsóknarinnar er sú að lúxusferðamenn hafa gríðarlega sértækar þarfir og óskir og eru tilbúnir til að greiða háar upphæðir fyrir upplifun í sérflokki. Ísland hefur mjög margt fram að færa til lúxusferðamanna og tækifærin eru á hverju strái. En til þess að nýta megi þau tækifæri sem eru til staðar þarf nauðsynlega að bæta innra umhverfi og regluverk ferðaþjónustunnar í heild ásamt því að stuðla að frekari menntun í þjónustugreinum. Við auknar kröfur um skilyrði til menntunar má búast við að þjónustugæði aukist og þjónustuaðilar verði í kjölfarið betur í stakk búnir til að mæta auknum kröfum lúxusferðamanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Telma Björk Fjalarsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25153
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25153

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Telma Björk Fjalarsdóttir 1984-. Gæði, magn og vilji - ferðamönnum ylji : hvernig getur Ísland höfðað betur til lúxusferðamanna?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25153