Bifröst University
Stafræn markaðssetning fyrir Samskip : hvernig geta Samskip nýtt sér kosti stafrænnar markaðssetningar?
Abstract
dc:description.abstractÍ upplýsinga- og tæknivæddu samfélagi sem við lifum í dag, verður krafan á fyrirtæki æ meiri til að gera samskipti sín við viðskiptavini eins hnökralaus og einföld og mögulegt er. Á sama tíma fær rödd neytenda meira vægi með tilkomu samfélagsmiðla og þurfa fyrirtæki að ákveða hvar, hvenær, hverjum og hvernig þau ætla að birtast út í hinum stafræna heimi. Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að meta núverandi stöðu Samskipa með tilliti til stafrænna þátta og meta með hvaða hætti Samskip geta nýtt sér kosti stafrænnar markaðssetningar. Í fyrri hluta þessarar ritgerðar er farið yfir þá fræðilegu þætti sem snúa að stafrænni markaðssetningu og helstu hugtök. Í síðari hluta ritgerðarinnar eru samfélagsmiðlar skoðaðir með tilliti til fyrirtækjamarkaðar ásamt greiningu á stafrænu umhverfi Samskipa. Framkvæmdar eru stafrænar greiningar með aðstoð viðurkenndra módela stafrænnar markaðsfræði til að ná fram skýrari mynd á hvaða tækifæri eru til staðar fyrir Samskip. Jafnframt er skoðuð rannsókn Cerasis, fyrirækis á flutningamarkaði í Bandaríkjunum sem gaf áhugaverðar niðurstöður og markmiðasetning þeirra metin og tengd stafrænum fræðum. Niðurstöður greiningarvinnunnar leiddu í ljós að tækifæri eru til staðar fyrir Samskip og möguleikar fyrir fyrirtækið að nýta sér enn frekar kosti stafrænnar markaðssetningar til frekari vaxtar á markaði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Óskar Jensson 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25148
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25148