Back to results

Bifröst University

Draumastarfið : greining á starfsumhverfi leikara á Íslandi og viðhorfum leikara til starfshvata og starfsumhverfis síns.

Abstract

dc:description.abstract

Útdráttur Markmið þessarar rannsóknar er að kanna starfsumhverfi leikara á Íslandi og að kanna viðhorf þeirra til þess. Lögð áhersla á starfshvata leikara til vinnu sinnar, vægi launa annarsvegar og ástríðu og listræns metnaðar hinsvegar á starfshvata þeirra. Gerð er grein fyrir kjarabaráttu, launum og áhrifavöldum á starfsánægju ásamt álagsþáttum, svo sem starfsöryggi, vinnutíma, líkamlegu álagi og frægð. Huglægum hvötum leikara til vinnu sinnar eru að auki gerð skil. Rannsóknin byggist á spurningakönnun sem send var í nóvember 2014, á alla leikara sem voru félagsmenn í Félagi íslenskra leikara á þeim tíma og einnig voru tekin hálfopin viðtöl við fjóra leikara sem ná yfir breitt aldurbil, mismunandi starfsreynslu, menntun í faginu á Íslandi og erlendis og af báðum kynjum en þau viðtöl fóru fram í október 2014. Notast var við lýsandi tölfræði, fylgnimælingar og marktæknipróf við greiningu gagna og framsetningu þeirra. Að lokum er virðiskeðja menningarframleiðslu skýrð og sýnt fram á að starfshvatar leikara eru mikilvæg einkenni frumþáttar við greiningu framleiðslu á starfsvettvangi þeirra. Lykilorð: Leikarar, leiklist, menning, starfsumhverfi, starfshvatar, kjarabarátta, Félag íslenskra leikara, ástríða í starfi, starfsánægja, listrænn metnaður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Agnar Jón Egilsson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23773
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23773

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Agnar Jón Egilsson 1973-. Draumastarfið : greining á starfsumhverfi leikara á Íslandi og viðhorfum leikara til starfshvata og starfsumhverfis síns.. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23773