Bifröst University
Draumastarfið : greining á starfsumhverfi leikara á Íslandi og viðhorfum leikara til starfshvata og starfsumhverfis síns.
Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur Markmið þessarar rannsóknar er að kanna starfsumhverfi leikara á Íslandi og að kanna viðhorf þeirra til þess. Lögð áhersla á starfshvata leikara til vinnu sinnar, vægi launa annarsvegar og ástríðu og listræns metnaðar hinsvegar á starfshvata þeirra. Gerð er grein fyrir kjarabaráttu, launum og áhrifavöldum á starfsánægju ásamt álagsþáttum, svo sem starfsöryggi, vinnutíma, líkamlegu álagi og frægð. Huglægum hvötum leikara til vinnu sinnar eru að auki gerð skil. Rannsóknin byggist á spurningakönnun sem send var í nóvember 2014, á alla leikara sem voru félagsmenn í Félagi íslenskra leikara á þeim tíma og einnig voru tekin hálfopin viðtöl við fjóra leikara sem ná yfir breitt aldurbil, mismunandi starfsreynslu, menntun í faginu á Íslandi og erlendis og af báðum kynjum en þau viðtöl fóru fram í október 2014. Notast var við lýsandi tölfræði, fylgnimælingar og marktæknipróf við greiningu gagna og framsetningu þeirra. Að lokum er virðiskeðja menningarframleiðslu skýrð og sýnt fram á að starfshvatar leikara eru mikilvæg einkenni frumþáttar við greiningu framleiðslu á starfsvettvangi þeirra. Lykilorð: Leikarar, leiklist, menning, starfsumhverfi, starfshvatar, kjarabarátta, Félag íslenskra leikara, ástríða í starfi, starfsánægja, listrænn metnaður.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Agnar Jón Egilsson 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23773
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23773