Bifröst University
Þjónandi forysta og starfsánægja : rannsókn á íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum
Abstract
dc:description.abstractKrafa samtímans hefur veið að stjórnunarhættir fyrirtækja lagi sig að gömlum og hefðbundnum gildum þar sem heiðarleiki traust og heilindi eru höfð í fyrirrúmi. Að sama skapi hefur nýsköpun verið mikið til umræðu síðustu misseri og oftar en ekki bent á nýsköpunar- og sprotafyrirtæki sem mótvægi við hinar hefðbundnu stoðir í íslensku efnahagslífi. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að jákvæð tengsl eru á milli þjónandi forystu og starfsánægju. Tilgangur þessarar ritgerðar var að leggja mat á vægi þjónandi forystu innan íslenskra nýsköpunarfyrirtækja og kanna hversu ánægðir starfsmenn þeirra væru í starfi. Einnig var rannsakað hvort tengsl væru annars vegar á milli þjónandi forystu og starfsánægju og hins vegar á milli þjónandi forystu og bakgrunns starfsmanna. Spurningakönnun var lögð fyrir starfsmenn fjölbreyttra nýsköpunarfyrirtækja og alls svöruðu 107 manns. Mat var lagt á þjónandi forysta var með mælitækinu Servant Leadership Survey sem byggist á 30 atriða spurningalista og mælir einnig undirþætti þjónandi forystu. Niðurstöður benda til þess að vægi þjónandi forystu í íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum sé talsvert eða 4,3 á kvarða frá einum og upp í sex. Starfsánægja var einnig mikil en rúmleg 80% þátttakenda voru ánægðir eða mjög ánægðir í starfi. Þá sýna niðurstöður einnig að mikil marktæk fylgni er á milli heildarmælingar þjónandi forystu og starfsánægju auk þess sem marktæk fylgni er milli sjö af átta undirþáttum þjónanadi forystu og starfsánægju. Niðurstöður gefa til kynna að þjónandi forysta hafi jákvæð áhrif á starfsánægju og ástæða sé til þess að auka vægi hennar hjá íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Steinar Örn Stefánsson 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23736
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23736