Bifröst University
Deilihagkerfi : skammtímaleiga, heimagisting og leiga einkabifreiða á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractDeilihagkerfi hefur marga anga en það sem hefur hvað mest verið til staðar hér á Íslandi í tengslum við ferðaþjónustu. Þetta eru heimagisting, skammtímaleiga á íbúðum og leiga á einkabifreiðum. Í þessu verkefni er kannaður lagalegur grundvöllur þessara þátta innan deilihagkerfisins ásamt því að hugtakið er skilgreint. Einnig er greint lauslega frá þróun ferðaþjónustu hér á landi og hverjir áherslupunktarnir hafa verið í gegnum árin. Á síðasta þingári (2014-2015) var lagt fram lagafrumvarp til breytingar á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald sem ætlað var að ná utan um þær breytingar sem hafa orðið með auknu framboði gistirýma í heimagistingu eða skammtímaleigu. Ekki náðist að klára það frumvarp en samkvæmt Ragnheiði Elínu Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra er unnið að nýju frumvarpi sem lagt verður fram á þessu ári. Helstu niðurstöður þessa verkefnis eru að lagalegur grundvöllur leigu á einkabifreiðum er traustur en það má rekja til þess að lög voru mótuð áður en starfsemin fór á flug. Það voru nokkrir punktar í frumvarpinu sem lagt var fram á síðasta ári sem fengu athugasemdir, sem snéru aðallega að því hvernig framkvæma ætti hlutina og á ábyrgð hvers sú framkvæmd væri. Það verður áhugavert að sjá hvernig komandi frumvarp mun hljóða.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Berglind Guðmundsdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23728
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23728