Back to results

Bifröst University

Starfsemi og hlutverk listagallería : viðhorf átta myndlistarmanna

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf myndlistarmanna til listagallería. Í rannsókninni var lögð áhersla á tvenns konar starfsemi listagallería, annars vegar listamannarekinna gallería og hins vegar faglegra gallería. Einnig voru teknir til greina þættir sem tengja myndlistarmenn og gallerí við myndlistarheiminn, eins og t.d. ferill listamannsins og listaverkamarkaðurinn. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð við framkvæmd rannsóknarinnar. Þátttakendur hennar voru átta talsins, fjórar konur og fjórir karlar á aldrinum 45 - 65 ára. Helmingur viðmælenda starfaði með faglegum galleríum en hinn helmingurinn starfaði sjálfstætt. Grunduð kenning var notuð við gagnagreiningu rannsóknarinnar. Rannsakandi tók átta hálfopin viðtöl. Í gagnagreiningarferlinu komu í ljós fjögur meginþemu, sem stuðst var við í ritgerðinni. Sameiginlegir þættir úr viðtölunum sem mótuðu þemu rannsóknarinnar snéru að tengslum myndlistarmanna við listamannarekin gallerí, fagleg gallerí, ferilinn og markaðinn. Fræðikafli ritgerðarinnar og rannsóknarspurningar hennar voru mótaðar út frá þessum fjórum þemum. Meginniðurstöður rannsóknarinnar sögðu til um það að ólík starfsemi gallería hefðu sínu hlutverki að gegna í ferli myndlistarmanna og í tengingu hans við listheiminn. Listamannarekin gallerí voru álitin upphafspunktur í ferli myndlistarmanna, þar sem listsköpunin fékk tækifæri til að þroskast og mótast. Fagleg gallerí voru aftur á móti talin staður þar sem ráðsettir listamenn fengu tækifæri til að ná lengra með list sína og feril. Í niðurstöðunum komu einnig fram þættir sem tengdust markaðnum og leiðir til að auka sölu listaverka og einnig þættir sem tengdust ferli myndlistarmanna þar sem ákveðnar reglur komu fram sem þarf að framfylgja til þess að listamaður sé tekinn í sátt af myndlistarheiminum í dag.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Snorri Freyr Snorrason 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23721
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23721

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Snorri Freyr Snorrason 1986-. Starfsemi og hlutverk listagallería : viðhorf átta myndlistarmanna. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23721