Back to results

Bifröst University

Skaðabótaábyrgð stjórnarmanna, túlkun dómstóla á 1. mgr. 134. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög

Abstract

dc:description.abstract

Ábyrgð stjórnarmanna hefur verið mikið í deiglunni síðustu ár og þá sérstaklega eftir efnahagshrunið, sem varð í landinu 2008. Í kjölfarið hefur dómstóll götunnar vægðarlaust fjallað um stjórnarmenn félaga og yfirmenn fyrirtækja og haldið því fram að þeir hafi ekki hlotið makleg málagjöld fyrir óvarfærni í rekstri. Þá hefur einnig verið deilt um það hvort að rekstrarform félaga með ótakmarkaðri ábyrgð séu yfir höfuð æskileg á viðskiptamarkaði út frá siðferðislegu sjónarhorni. Stjórnarmenn hafa verið fundir ábyrgir og skaðabótaskyldir að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Í lokaverkefni þessu verður leitast við að gera grein fyrir skaðabótaábyrgð stjórnarmanna hlutafélaga. Fyrst í stað verður farið yfir ákvæði hlutafélagalaganna og reifuð þau skilyrði sem hátterni stjórnarmanns þarf að uppfylla til að geta talist skaðabótaskyldur samkvæmt ákvæðinu. Fjallað er stuttlega um tilurð ákvæðisins og þau skilyrði sem horft var til þegar að ákvæðið var sett að dönskum rétti. Til þess að varpa ljósi á ábyrgð og skyldur stjórnarmanna verður lagaramma hlutafélaga gerð skil og fjallað stuttlega um þær stjórnunareiningum sem innan þeirra starfa. Sérstök áhersla er á umfjöllun um framkvæmdarstjóra til þess að skýra skörun á störfum hans við störf stjórnarinnar. Fjallað er um sakarregluna, en á henni byggir bótagrundvöllur skaðabótaákvæðis hlutafélagalaganna hún er því höfð til grundvallar við mat á saknæmi stjórnarmanna. Reifaðar eru lögbundnar og ólögbundnar skyldur stjórnarmanna, fjallað um túlkun dómstóla á þeim og hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi til að vanræksla á þeim teljist skaðabótaskyld.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lilja Björg Ágústsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23135
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23135

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lilja Björg Ágústsdóttir 1982-. Skaðabótaábyrgð stjórnarmanna, túlkun dómstóla á 1. mgr. 134. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög. 2015. http://hdl.handle.net/1946/23135