Back to results

Bifröst University

Virkni atvinnuleitenda á Íslandi : aðstæður og úrræði til starfshvatningar

Abstract

dc:description.abstract

Í ljósi umræðunnar um aukið atvinnuleysi á Íslandi í kjölfar kreppunnar og afleiðingar þess að lægstu laun á Íslandi eru það lág að fólk hafi ekki mikinn hvata til að vinna, þá kviknaði hugmyndin að því að kanna viðhorf þeirra sem eru á atvinnuleysisbótum sem gætu nýst til að skilja stöðuna betur til hagsbóta fyrir vinnumarkaðinn. Markmiðið með rannsókninni var að kanna hvað það er sem hvetur fólk til starfa. Mörg láglaunastörf eru í boði í dag en samt eru margir skráðir á atvinnuleysisskrá í stað þess að fara að vinna við láglaunastörf. Viðhorfskönnun var send til 400 Íslendinga á skrá Vinnumálastofnunar og Starfs á aldrinum 18 - 67 ára á tímabilinu 12. - 24 nóvember 2014. Notast var við lýsandi tölfræði í framsetningu á niðurstöðum. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að fólki fannst mest um vert að störfin sem sótt væri um væru áhugaverð, í öðru sæti voru launin, í þriðja sæti var að fyrirtæki gengi vel og ekki væri mikið um mannabreytingar. Í fjórða sæti kom nálægð við heimili og í fimmta sæti kom sveigjanleiki gagnvart einkalífi (t.d veikindi barna ofl). Af þeim 167 aðilum sem svöruðu hvaða menntun þau væru með voru 131 aðili sem voru með meiri menntun en grunnskólapróf. Einnig gaf viðhorfskönnun í skyn að fólki fyndist ekki nægilega há laun miðað við kjarasamninga til að fara út á vinnumarkaði og fólki fannst að það vantaði meira af störfum sem myndi hæfa þeirri þekkingu og kunnáttu. Fáar rannsóknir virðast vera um þetta málefni enn sem komið er og gætu frekar rannsóknir á þeim haft hagnytt gildi fyrir atvinnulausa, starfsmenn vinnumarkaðarins og Vinnumálastofnun. Lykilorð: Atvinnuleysi, Viðhorfskönnun, Láglaunastörf, Atvinnuleysisskrá, Lágmarkslaun, Atvinnuleysisbætur, Vinnumálastofnun, Starf.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jónína Ingibjörg Gerðarsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22060
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22060

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jónína Ingibjörg Gerðarsdóttir 1974-. Virkni atvinnuleitenda á Íslandi : aðstæður og úrræði til starfshvatningar. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22060