Back to results

Bifröst University

Hafa íslensk fyrirtæki í fataiðnaði stefnu í samfélagslegri ábyrgð?

Abstract

dc:description.abstract

Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja hefur verið mikið í umræðunni undanfarið vegna umfjallana sem birst hafa á netinu. Því var tilgangur þessarar rannsóknar að skoða ástand mála hjá fyrirtækjum á Íslandi og þá sérstaklega í miðborg Reykjavíkur. Tekin voru viðtöl við sjö aðila og lagðar fyrir þá hálfopnar spurningar (e. semi-structured) ásamt því að heimasíður allra þeirra fyrirtækja og hönnuða voru skoðaðar með tilliti til upplýsinga um samfélagslega ábyrgð fyrirtækisins. Settar voru fram 4 fullyrðingar um eftirlit, stefnu, uppruna og aðstæður við framleiðslu út frá rannsóknarspurningunni: Hafa íslensk fyrirtæki í fataiðnaði stefnu í samfélagslegri ábyrð þegar kemur að framleiðslu vara erlendis? Niðurstöður leiddu í ljós að íslensk fyrirtæki eru almennt ekki með opinbera stefnu um samfélagslega ábyrgð fyrirtækisins en vinna þó eftir gildum um samfélagslega ábyrgð að einhverju leiti þar sem ýmist er notað hyggjuvit sem tengist framleiðslunni, hvaða áhrif þau hafa á náttúruna, hvernig eru þau unnin. Gætt er að því að vinnsla sé ekki umhverfisskemmandi og eins velt vöngum yfir kolefnisfótsporum sem varan skilur eftir sig. Aðrir taka út ákveðna þættti eins og umhverfisvernd, að engin aukaefni séu í vöru; annar skrifar undir siðareglur við birgja þar sem tekið er á mannréttindum, aðbúnaði, vinnutíma og þess háttar og jafnframt hugsað um mengun sem verður vegna litunar á bómull á meðan enn aðrir eru að marka sér stefnu og vilja vera sjálfbærir. Aðrir eru með Evrópuvottuð efni og þá er hugað að dýravernd og að framleiðsla sé umhverfis- og náttúruvæn. Þegar heimasíður fyrirtækjanna voru skoðaðar þá reyndust 6 af 38 heimasíðum með eitthvað af óformlegum upplýsingum um samfélagslega ábyrgð fyrirtækisins. Fimm lykilorð um efni ritgerðar: samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja, íslenskt, framleiðsla, iðnaður, fataiðnaður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðný Sigríður Magnúsdóttir 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22050
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22050

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðný Sigríður Magnúsdóttir 1964-. Hafa íslensk fyrirtæki í fataiðnaði stefnu í samfélagslegri ábyrgð?. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22050